Vikan 5.-9. mars

Sæl.

Á morgun er foreldraviðtalsdagur.   Í möppunum eru dagsetningar um mætingatíma.

Í þessari viku höldum við áfram að vera kurteis og við reynum að lofa öllum að vera með í leik.

Við höldum áfram að vinna í vinnubókum og svo skrifum við sögu í stílabókina.  Allir reyna að lesa í skólanum og heima.

Í síðustu viku fórum við í göngutúr um hverfið og reyndum að sjá sérnöfn.  Við gátum lesið á skilti þar sem stóð m.a. Gullfoss og Geysir og svo voru götuheiti, Hótel Flúðir, Samkaup Strax og fleiri sérnöfn.  Börnin voru mjög dugleg að finna og muna sérnöfnin í umhverfinu.

Í stærðfræði vinnum við að mestu í Sprota en stundum skiptum við yfir í bók um vasareikna, Viltu reyna og tölvuforrit frá Tómasi Rasmus sem er hér á heimasíðu skólans.

Við klárum bókina Komdu og skoðaðu hvað dýrin gera og búum til litla dýrabók.

Umsjónarmenn vikunnar eru:  Andrea Ósk og Sonja Ýr.

Þær sem láta „ljós sitt skína eru“ :  Ingibjörg og Þórey Þula.

Á föstudaginn verður spiladagur, þá mega börnin koma með spil að heiman ef þau eiga.

Bestu kveðjur

Sjöfn.

 

Vikan 27.febr. -2. mars

Sæl.

Nú fer að birta á morgnanna og það er ekki laust við að það komi stundum vorilmur í loftið.  En enn er febrúar svo það er allra veðra von,  en við vonum það besta.

Við höldum áfram að vera kurteis og þökkum fallega fyrir matinn og segjum takk fyrir daginn o.sfrv.

Þessi vika verður hefðbundin en þó fara vitnisburðamöppurnar heim á föstudaginn.  Það er f leiðsagnamat á Mentor þar sem þið foreldrar eigið að svara spurningum um ástundun og líðan barna ykkar með þeim.  Lokað verður fyrir matið/könnunina á sunnudaginn.  Gott væri að sitja saman fyrir framan tölvuna og spá í spurningarnar með barninu og svara.  Við ræðum svo saman á foreldraviðtalsdeginum sem verður þriðjudaginn 6. mars.

Í heimavinnu er eitt ljósrit í plastmöppunni og búið er að merkja dagsetningu í Sprota.  Svo er það heimalesturinn og orðin.

Umsjónarmenn vikunnar eru:  Bjartur Snær og Damian.

Láta ljós sitt skína:  Andrea Ósk og Arngrímur Jökull.

Bestu kveðjur

Sjöfn

vikan 20.-24. febrúar.

Sæl.

Þessi vika verður heldur líflegri en aðrar vikur.

Ídag er bolludagur eins og allir vita, margir komu með bollu í nesti og svo bjó Gurra til bolluvönd og sýndi okkur.  Við fræddumst um bolludaginn og siði tengda honum.  Við bjuggum til bollukarla og kerlingar úr pappadiskum, kreppappír og fl.  og hengdum í loftið.  Á morgun er svo sprengidagur og þá fræðumst við um hann.

Öskudagurinn verður á sínum stað með fjöri og balli.  Sjá auglýsingu á heimasíðu skólans.

Núna erum við  með kurteisisviku.   Við ræðum um kurteisi og börnin skrifa orð tengd kurteisi á svokallaðan orðavegg.  Þau læra m.a. að bjóða góðan daginn, þakka fyrir sig,  mikilvægi þess að brosa og vera góð við alla.

Í vikunni höldum við svo áfram að æfa lesturinn og ritunina auk þess að reikna í sprota.

Ég fer á námskeið á föstudaginn þannig að „að láta ljós sitt skína“ bíður. 

Magnea er oft með okkur á föstudögum í eina kennslustund og fræðir börnin um margt skemmtilegt.  Þau hafa séð Pétur og úlfinn og myndband með skemmtilegum barnalögum.  Einnig hafa þau fræðst  um nótur og prófað að skrifa sjálf nótur .  Börnin eru ánægð hjá Magneu og sýna þessu áhuga.

Umsjónarmenn vikunnar eru:  Arngrímur Jökull og Hjörtur Snær.

Heimavinna: Sproti, búið að merkja í bækurnar. Skrifa um öskudaginn, í stílabók, hvernig var hann hjá ykkur?

Vetrarfrí

Í næstu viku er vetrarfrí.  Börnin koma aftur í skólann á föstudaginn.

Þeir sem láta ljós sitt skína á föstudaginn eru:  Ingibjörg og Damian.

Ég vona að þið hafið það gott í fríinu.

Bestu kveðjur

Sjöfn

Vikan 6.-10. febrúar.

Sæl.

Umsjónarmenn vikunnar eru:  Þórey Þula og Ingibjörg Bára.

Þeir sem láta ljós sitt skína á föstudaginn eru:  Sonja Ýr og Vignir.

Í dag fara börnin í heimilisfræði en heimilisfræði er aðra hvora viku.

Börnin tóku könnun úr hluta af Sprota í síðustu viku en það náðu ekki allir að ljúka, þannig að á morgun hyggst ég leyfa þeim að klára og þeir sem voru veikir taka könnunina einnig á morgun, þriðjudag.  Á miðvikudaginn ætla ég svo að láta börnin taka hraðlestrarpróf.

Við fjöllum um dýrin í samfélagsfræðinni.   Hvað gera dýrin?  Fjallað er um atferli dýra, svo sem leiki, uppeldi, pörun og félagshegðun.  Mörg dæmi eru tekin um fjölbreytta hegðun dýra og einnig mannanna.

Í vikunni teiknum krumma, skrifum ljóð um krumma og athugum hvað hann gerir á sumrin og veturna.

Á föstudaginn er ætlunin að yngsta stig fari saman í göngutúr ef veður leyfir.  Við ætlum okkur að ganga í áttina að Galtafellsfjalli og fræða börnin meðal annars um hvar gamli vegurinn lá þegar langamma og afi voru ung.

Einnig verðum við í 2. bekk með dótadag á föstudag.  Þá mega börnin koma með dót að heiman.  Betra væri að dótið væri ekki of fyrirferðarmikið. 

Svo minni ég á vetrarfrí í næstu viku þ.e. frá mánudegi til föstudags.  Skóli hefst aftur  föstudaginn 17. febrúar.

Heimavinna:  Eitt blað í plastmöppu og ein blsðsíða í Sprota auk lesturs heima.

Bestu kveðjur

Sjöfn

Vikan 30.jan. – 3. febrúar

Á föstudaginn var þorrablót hjá yngsta stigi.  4. bekkingar fræddu okkur meðal annars um matarvenjur í gamla daga .  Á boðstólum var alls konar þorramatur, flatkökur og kleinur sem nemendur bökuðu sjálfir í heimilisfræðinni.  Einnig voru hrútspungar, sviðasulta, hákarl, magáll, lifrapylsa og harðfiskur.  Krakkarnir voru mjög duglegir að smakka og smökkuðu flest, meira að segja var hákarlinn bísna vinsæll. Sungin voru Fósturlandsins Freyja, Táp og fjör að ógleymdum Þorraþrælnum.  Vel heppnað blót í alla staði.

Í dag vorum við að æfa okkur í stafsetningu og á eftir ætlum við að fara í stærðfræði auk þess að fræðast um dýrin sem Nói tók með sér í örkina sína.

Í vikunni höldum við áfram að vinna í Sprota og vinnubókum auk þess að skrifa sögu í sögubókina.

Á föstudaginn kemur svo Magnea til okkar eins og hún gerir oft á föstudögum og fræðir okkur um nótur og ýmis hljóðfæri.

Á föstudaginn er einnig könnun í stærðfræði.  Nemendur eiga að þekkja myntirnar, krónur, fimmkalla og tíkalla, nemendur geti talið tugi og einingar.  Nemendur geti sagt til um hvað klukkan er, heilan og hálfan tíma.  Nemendur geti fundið helming peningaupphæðar sem sýnd er á mynd.  Nemendur geti fundið stærð flatar með því að telja fjölda reita sem flöturinn þekur.  Nemendur leggja saman tugatölur og draga frá.

Umsjónarmenn vikunnar eru: Arngrímur Jökull og Vignir.

Þeir sem láta ljós sitt skína á föstudaginn eru: Bjartur Snær og Hjörtur Snær.

Vikan 23-27. janúar

 

 Í þessari viku, fyrstu viku þorra verður höfum við mikið fyrir stafni.

 

 

 

Á morgun, þriðjudag legg ég fyrir Læsi, lestrarskimun fyrir 2. bekk, fyrra hefti.  Í heftinu eru verkefni varðandi       umskráningu algengra orða, að lesa orð í heild ásamt verkefnum í að greina samsett orð og orðalestur.  Kolbrún verður með mér í tímanum.

Nú á þorra æfum við þorralög og vetralög t.d. Þorraþrælinn, minni kvenna, Táp og fjör og krummavísur eins og Krummi sat í klettagjá.

Á föstudag verður svo árlegt þorrablót yngsta stigs.  Þá fá þau að smakka á ýmsu góðgæti.  Gaman væri að börnin kæmu í lopapeysum í skólann ef þau eiga.

Við höldum áfram að fjalla um Syndafallið, Örkina hans Nóa.  Þau velja sér dýr til að setja í örkina, mála og skrifa hvað dýrið heitir, er það rándýr? spendýr o.s.frv.

Ég er að æfa börnin í talnaskilningi.  Þau giska á  vegalengdir, giska á þyngd,  telja í tugum, reyna að læra plúsheiti utanað fyrir 10 og fleira skemmtilegt.

Heimavinna:  Sproti, æfingahefti.  Búið er að merkja í bækurnar.  Skila á mánudaginn.

Muna svo að lesa og skrifa orðin heima.  Æfingin skapar meistarann.

Bestu kveðjur

Sjöfn

 

 

Heimavinna

Sproti, verkefnabók verður aftur í heimavinnu í þessari viku.  Búið er að merkja í bækurnar.  Muna svo eftir heimalestrinum og orðunum í stílabókina.

Kveðja

Sjöfn

Vikan 15.-20. janúar

Sæl öll.

Nú hefur hlánað mikið og ætlum við því í dag að fara í skóginn í nokkra athyglisleiki.  Í morgun létu Ingibjörg og Þórey Þula ljós sitt skína og var bæði fróðlegt og skemmtilegt að hlusta á þær og sjá það sem þær höfðu meðferðis.

Í vikunni höldum við áfram í verkefnabókunum í íslensku og í Sprota bókunum.  Í kristinfræðinni fjöllum við um örkina hans Nóa og gerum stóra mynd sem fer á vegginn.

Þorrinn byrjar á föstudaginn  með bóndadeginum og munum við fræðast um bóndadaginn og þorrann.  Við vinnum í ritun um þorrann og teiknum líka myndir.

Þorrablót yngsta stigs er fyrirhugað þann 27. janúar, sem er föstudagur.

Umsjónarmenn vikunnar eru:  Hjörtur Snær og Damian.

Þeir sem láta ljós sitt skína eru:  Vignir og Andrea Ósk.

 

vikan 9.-13. janúar

Sæl öll.

Veður og færð ætla greinilega að vera okkur erfið í byrjun árs.  

Ég komst ekki inn á Mentorinn og er því áætlun vikunnar ekki komin inn.  Vonandi hefst þetta á morgun.

Í vikunni höldum við áfram að vinna með lesturinn, skriftina, ritun og stærðfræði.  Ég reyni að láta flesta lesa og eins er nauðsynlegt að þau lesi heima.  Lesturinn er undirstaða alls náms.  Við erum að vinna í Ritrún, þar er kynnast börnin stafrófinu, læra stafrófsvísuna, þau ríma og vinna með margvísleg orð og semja t.d. ævintýri.  Í sprota er unnið meðal annars með reiknisaðgerðirnar plús og mínus auk klukkunar,  marghyrninga og hringi. 

Börnin eiga að reikna heima um það bil tvær blaðsíður í vikunni.  Búið er að merkja dagsetningar í æfingahefti Sprota.

Við höldum áfram með kristinfræðina, þau kynnast nokkrum bænum og læra um Kain og Abel.

Umsjónarmenn vikunnar eru Sonja Ýr og Bjartur Snær.

Þeir sem láta ljós sitt skína á föstudaginn eru:  Ingibjörg Bára og Þórey Þula.

Bestu kveðjur

Sjöfn