Heil og sæl öll.
Nú er árshátíðarvikan runnin upp í öllu sínu veldi.
Á morgun verður rennsli hjá öllum hópum. Þá eiga allir að vera komnir með búninginn sinn.
Á miðvikudaginn verður lokaæfing og við höfum boðið nemendum Þjórsárskóla og nemendum leikskólans að koma og fylgjast með henni.
Á miðvikudaginn kl. 16:00 er svo árshátíðin sjálf. Krakkanir frá hressingu hjá okkur kl. 15:00 og eftir það förum við að gera okkur klár fyrir sýningu. Vonandi geta allir komið og séð hvað nemendur hafa verið að undirbúa. Ef einhver þarf á skóaakstri að halda heim að lokinni sýningu þarf að hafa samband og láta vita af því.
Engin heimavinna fer heim í þessari viku.
Á föstudag er síðasti kennsludagur fyrir páskafrí.
Krakkarnir fóru heim í dag með miða frá Æskulýðsnefnd Smára. Ég átti að koma þessum miða heim fyrir helgi, en það fyrirfórst því miður í öllum asanum. Ég held að það hljóti að vera í lagi að panta á sýninguna í dag ef einhverjir ætla að fara.
Kveðja, Margrét