Posted in Uncategorized on 01/30/2012 01:19 e.h. by magga

Föstudaginn 27. janúar héldu nemendur yngsta stigs þorrablót með miklum glæsibrag.
Blótið í ár var með nokkuð öðru sniði en undanfarin ár. Í ár vorum við ekki með skemmtiatriði frá bekkjunum, en lögðum því meiri áherslu á samsöng og samveru. Saman sungu bekkirnir nokkur lög, strákarnir sungu „Fósturlandsins freyja“ fyrir allar dömurnar í hópnum. Stelpurnar sungu svo „Táp og fjör..“ piltunum til heiðurs.
Fjórðu bekkingar stóðu sig vel í undirbúningi. En þeir notuðu morguninn til að skera niður í litla bita þorramatinn sem á boðstólnum var, merkja alla bakkana og báru þá svo á borð.
Fjórðu bekkingar voru líka með kynningu fyrir alla nemendur á því hvernig maturinn var geymdur hér áður fyrr. Einnig kynntu þeir nokkrar tegundir af þorramat og sögðu frá hvernig hann er verkaður.
Þá var loksins komið að hápunkti dagsins, að sumra mati, en það var að smakka herlegheitin. Það var virkilega gaman að fylgjast með krökkunum bragða þennan framandi mat. Mjög margir voru duglegir að smakka fjölbreyttan mat. Stemningin var þannig að það þótti „flott“ að vera duglegur að smakka. Bara gaman að því.

Posted in Uncategorized on 01/25/2012 05:09 e.h. by magga
Þriðju bekkingar nýttu snjóinn í gær til að búa til marga, marga snjóbolta. Þeir fengu svo það verkefni að setja upp ákveðið margföldunardæmi. Ég átti sem sagt að geta séð hvaða dæmi krakkarnir voru að setja upp með þvi að líta örsnöggt yfir svæðið sem þeir höfðu til umráða. Það tók nemendur nokkurn tíma að ræða saman og átta sig á hvernig þeir færu að þessu. En eftir að komast í gegnum eitt dæmi var næsta dæmi auðveldur leikur
Posted in Uncategorized on 01/25/2012 05:03 e.h. by magga
Á föstudaginn unnu nemendur í 1-4 bekk í aldursblönduðum hópum að verkefnum sem tengdust þorranum. Hver hópur fór í gegnum fjórar stöðvar. Á einni stöðinni var búinn til víkingahjálur, á annarri þorratrog. Á þorrablótinu er ætlunin að skarta hjálminum og éta þorramat úr troginu. Einnig voru búin til vinabönd og myndir af nokkum vel völdum goðum og vættum úr norrænni goðafræði. Dagurinn tóks vel og voandi allir kátir
Posted in Uncategorized on 01/24/2012 10:15 f.h. by magga
Himingeimurinn er sannarlega heillandi viðfangsefni. Fyrsta verkefnið í þeirri vinnu var að læra um stjörnuþokur. Við lærðum að til eru þrjár gerðir stjörnuþoka. Stjörnuþokan sem við tilheyrum er þyrilstjörnuþoka og heitir Vetrarbraut.
Krakkarnir gerðu Þyrilstjörnuþoku, með límbrúsa, glimmer og svart karton að vopni.
Posted in Uncategorized on 01/17/2012 03:57 e.h. by magga
Eins og áður hefur komið fram erum við að fást við himingeiminn þessa dagana. Við útbjuggum því okkar eigin geimskutlur í dag. Geimskutlan er í raun uppblásin blaðra sem fest er við rör. Rörið er þrætt upp á band sem strengt er milli tveggja stóla. Loftinu er svo hleypt út blöðrunni og markmiðið er að fá geimskutluna (blöðruna) til að komast alveg að hinum stólunum. Krakkarnir prófuðu sig fram og til baka í þessari tilraun. Þeir prófuðu að hafa ólíka spotta, mislöng rör, snéru blöðrunni á mismunandi hátt á bandið, höfðu það misstrekkt og sendu skutluna af stað misfulla af lofti. Ég held að það hafi allir haft gaman af þessari vinnu. Til gamans læt ég fylgja með að sú skutla sem fór lengst fór um 8 metra og var mjög fljót á leiðinni.
Posted in Uncategorized on 01/11/2012 02:45 e.h. by magga
9. janúar, skil á þriðjudag í næstu viku
Umsjónarmenn eru: Natalía Elín og Margrét Lilja
Heimavinna 3. bekkur:
Íslenska: Lesa heima a.m.k. fimm sinnum í vikunni.
Sögubók: Jólafrí
Stærðfræði- Stefnum að margföldun 2-3 bls.
Heimavinna 4. bekkur:
Íslenska: Lesa heima a.m.k. fimm sinnum í vikunni.
Sögubók: Jólafrí
Stærðfræði: Stefnum að deilingu, 3 bls.
Skilaboð
Tveir nemendur eru búnir að ljúka Stefnum að margföldun og deilingu. Þeir vita í hvaða stærðfræðiefni þeir eiga að vinna.
Í gær kom Guðný skólahjúkrunarfræðingur í heimsókn til þriðju bekkinga. Þeir fengu fræðslu um næringu og hollustu
Nemendur eiga að reyna að vinna stærðfræðina án þess að hafa stuðning af plöstuðu margföldunartöflunni sinni, hana má þó nota í einstaka dæmi ef þarf.
Nú erum við byrjuð að fræðast um himingeiminn í samfélagsfræðinni, auk þess sem við munum fjalla um skyndihjálp og ýmsar hættur í umhverfinu.
Kveðja Margrét
Posted in Uncategorized on 01/04/2012 03:06 e.h. by magga
Í dag var haldin kökuveisla í 3. og 4. bekk.
Þannig er mál með vexti að ég var ótrúlega lengi að uppfæra bekkjarheiti bekkjanna á haustönn. Kallaði þriðjubekkinga annarsbekkinga og fjórðubekkinga þriðjubekkinga. Sumir urðu auðvitað hálf móðgaðir. Ég samdi við krakkana um að ef þetta myndi henda í eitt skipti á nýju ári, kæmi ég með köku handa þeim. Öllum leist vel á þetta. En svo verð ég vör við að þau steinhætta að leiðrétta mig (svo ég muni nú örugglega halda áfram að rugla), þá breyttum við samningnum á þá leið að þau myndu láta mig vita þegar ég væri að ruglast og þau fengju köku á nýju ári. Og nú er nýtt ár í garð gengið og mitt að efna loforðið. Þetta var bara skemmitleg og kósý stund hjá okkur.
Kveðja Margrét
Posted in Uncategorized on 01/04/2012 02:59 e.h. by magga
4. janúar 2012
Heil og sæl öll og gleðilegt nýtt ár með þökk fyrir gott samstarf á liðnu ári.
Það var óskaplega ljúft að hitta krakkana í gær. Mér sýnist allir vera í góðu standi eftir gott jólafrí og tilbúnir að takast á við verkefni nýs árs.
Engar stórar breytingar eru fyrirhugaðar í bekkjarstarfinu, áfram verður mesta áhreslan á íslenskuna og stærðfræðina
Við höfum nú lokið við að að fara yfir líf og störf íslendinga áður fyrr (u.þ.b. um 1900) og erum að rifja það efni upp. Sú vinna kemur mikið inn í íslenskukennsluna.
Næsta viðfangsefni í samfélagsgreinunum er himingeimurinn. Mín reynsla er sú að nemendur á þessum aldri séu sérlega áhugasamir um allt sem þessu viðfangsefni viðkemur.
Nýir umsjónarmenn hafa nú tekið til starfa. Það eru þeir Jónas og Daniel
Á nýju ári förum við að aftur að láta ljós okkar skína. Það ætlum við að gera á föstudagsmorgnum. Þeir sem byrja eru Aron Ernir, Birgir Janusz og Gabríel Árni.
Þeir vita ekkert af því drengirnir enn sem komið er, vonandi man ég eftir að láta þá vita á morgun svo við getum byrjað á föstudaginn.
Heimavinna þessa vikuna er lestur. Nauðsynlegt er að gefa sér tíma til að hlusta á upplestur krakkanna u.þ.b. 10 mínútur á dag. Það er líka mjög gott fyrir krakkana að vera með einhverja skemmtilega bók til að glugga í sér til ánægju.
Kær kveðja, Margrét