Á föstudaginn í síðustu viku fóru nemendur yngsta stigs í gönguferð meðfram Litlu-Laxá. Á leiðinni töldu nemendur þá fugla sem þeir sáu, sem voru afar mismargir. Nokkrir töldu sig sjá nokkur hundruð fugla á meðan aðrir töldu í tugum.
Margt fleira en fugla bara á fjörur okkar, til dæmis veiddu nemendur fallega fjólubláan skó upp úr ánni.
Þetta var hin skemmtilegasta ferð og nemendur hressir og glaðir.

Í dag tóku nemendur svo þátt í sundmóti. Allir syntu tvær ferðir, pylsusund og sund með frjálsri aðferð. Eftir keppnina fengu nemendur að ylja sér í pottinum. Að lokum spreyttu nemendur sig í sund-handbola, körfubolta og teygjustökki.
Skemmtilegt mót sem vonandi verður haldið aftur á næsta ári.









