Skólinn hófst að nýju föstudaginn 17. febrúar eftir fjögurra daga vetrarfrí. Krakkarnir höfðu frá ýmsu að segja og greinilegt að allir upplifðu eitthvað nýtt. Sumir fóru í ferðir og margir voru í smá vinnu við að passa systkini sín.
Kennarinn nýtti vetrarfríið til að fara til Glasgow með starfsfólki Flúðaskóla og Leikskólanum. Þar var margt að sjá og nokkrar hugmyndir komu í kollinn, sem eflaust verða nýttar í skólastarfinu hér heima. Bekkurinn fékk myndasýningu í vikunni og heilmikil umræða skapaðist í kringum hana, m.a. skólabúningamál …..og fl.
Við erum nú farin af stað með landafræðina og nú erum við að læra um Vesturland. Við erum svo heppin að nokkrir krakkar hafa farið um Vesturland og einn okkar á heilmikla ættarflóru þar svo það er frá ýmsu að segja og lýsingarnar og tengingarnar verða meiri og nákvæmari þegar svo er.
Öskudagurinn var virkilega vel heppnaður og hátíðin í félagsheimilinu stórgóð, þökk sé foreldrafélaginu. Allir voru duglegir að mæta í búningum og tók þátt í deginum á skemmtilegan hátt. Ekki spillti það nú gleðinni á Batrek okkar fékk verðlaun fyrir skemmtilegasta búninginn.


úr því það klikkaði í dag.
Hann kynnti fyrir okkur glímuna og allir fengu að prófa.
Eitt og annað gerðist nú markvert þessa vikuna sem endra nær.
Hún sýndi okkur ýmsar myndir og talaði um mikilvægi þess að vera holl í matarvali og borða nokkrum sinnum yfir daginn. Hún talaði um hve gott væri fyrir okkur að hreyfa okkur mikið þá liði okkur betur bæði andlega og líkamlega.
þann viðburð þegar kristni var lögtekinn á alþingi á Þingvöllum. Við erum byrjuð að lesa leikrit um þann atburð sem annað hvort verður tekið upp á vídio eða flutt beint…….





