Vikan þotin eins og aðrar. Í dag hélum við þorrablót á miðstigi. Við hittumst í matsalnum og allir bekkir lögðu fram atriði.
7. bekkur varmeð upplestur um eitt og annað varðandi þann mat sem var á boðunum. 6. bekkur fræddi okkur um gamla mánaðarheitið Þorrann, ýmsar venjur varðandi matinn og fl. Stelpur og strákar í 7. bekk voru svo með “ MINNI, karla og kvenna“ þar sem dregið var fram margt krúttlegt um hitt kynið þótt augljóst væri nú að ekki
væri hitt kynið…… FULLKOMIÐ! Okkar framlag til skemmtunar var kvikmynd um kristinitökuna á Íslandi sem við erum
nýbúin að taka upp í stofunni okkar. Myndin tókst vel og var bara þrælskemmtileg (hvernig sem svo dráp og þvinganir geta verið skemmtilegar áhorfs!!!). Stákarnir sungu svo fyrir stelpurnar og stelpurnar fyrir strákana. Aldeilis flott! Svo má nú ekki gleyma að minnast á allan þorramatinn sem rann bara ljúflega niður um munn og maga. Krakkarnir voru búnir að undirbúa matinn í
heimilisfræðinni, smyrja flatkökur, baka kleinur, rífa harðfiskinn og skera allt gumsi, súrt og ósúrt, í litla teninga.
Í vikunni erum við búin að taka bæði miðsvetrarpróf í stærðfræði og könnun í stafsetningu. Krakkarnir voru búnir að læra vel fyrir stærðfræðina en stafsetningin var óvænt og enginn lærði sérstaklega fyrir hana.
Nemendaviðtöl standa yfir og er það von umsjónarkennarans að þau klárist í næstu viku. Í viðtölunum sest umsjónarkennari niður með hverjum og einum nemanda og fer yfir stöðu mála varðandi líðan og samskipti. Alltaf skila viðtölin einhverju sem þarf að taka upp og vinna með, ýmist stór eða smá mál en alltaf vonandi til hins betra fyrir okkur öll.