Enn einn veðurdagurinn í dag. Lítið um kennslu, það verður að hafa það. Vonandi er þessi veðuróvissa yfirstaðin og allt fari nú að fara í öruggan farveg. Þessa dagana eru ýmis próf  í gangi. Flestir eru búnir að taka lestrarpróf og allir reyndu sitt besta í móðurmálsprófinu í gær. Lesskilningsverkefni og stafsetning verður tekin eftir hendinni en á þriðjudaginn næsta verður próf í stærðfræði. Gátlisti og upprifjunarhefti fer heim með heimanáminu sem fer vonandi heim á morgun úr því það klikkaði í dag.

Á þriðjudaginn kom Ólafur Oddur Sigurðsson í heimsókn í skólann. Hann er glímufrömuður og hetja á þeim vettvangi. Hann kynnti fyrir okkur glímuna og allir fengu að prófa.

Skoðið endilega krækjuna hér til hliðar þar sem stendur myndir. Þar eru fleiri myndir af glímunni og öðrum viðburðum.