Eitt og annað gerðist nú markvert þessa vikuna sem endra nær.

Guðný hjúkka kom í heimsókn og spjallaði við okkur um hreyfingu og mataræði. Hún sýndi okkur ýmsar myndir og talaði um mikilvægi þess að vera holl í matarvali og borða nokkrum sinnum yfir daginn. Hún talaði um hve gott væri fyrir okkur að hreyfa okkur mikið þá liði okkur betur bæði andlega og líkamlega.

 

 

Í samfélagsfræðinni erum við að ljúka við víkingabækurnar og nú erum við að spjalla um fræga fornkappa á Íslandi og þann viðburð þegar kristni var lögtekinn á alþingi á Þingvöllum. Við erum byrjuð að lesa leikrit um þann atburð sem annað hvort verður tekið upp á vídio eða flutt beint…….

Nokkarar kannanir standa fyrir dyrum. Í móðurmáli og stærðfræði  æfa krakkarnir sig sérstaklega fyrir kannanirnar (heimavinnan sem fór heim í gær miðaðist við það sem kunna þarf í móðurmáli) og í stærðfræðinni tökum við könnun úr því efni sem við erum búin að vera að vinna í undanfarið. Svo er lestar, skriftar og ritunarpróf sem tekin eru eftir hendinni.

Ég læt svo fylgja mynd af verkefni sem krakkarnir unnu fyrir jólin í verkgreinunum. Betlemshúsið og fæðing Jesú.