Þá er bara komið jólafrí! Gaman gaman. Litlu jólin afstaðin og nú tókst leikritið okkar virkilega vel. Krakkarnir stóðu sig mjög vel og er upprennandi leikarar sem gætu svo vel staðið á sviði Þjóðleikhússins. Kíkið á myndirnar hér til hliðar. Við áttum svo notalega stund í bekkjarstofunni okkar þar sem ég (Guðbjörg) las sögu og allir hlustuðu mjög vel. ALlir fengu svo fallega kveðju frá bekkjarfélögunum sínum og að sjálfsögðu var pakkaruglið á sínum stað.
Ég óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Takk fyrir gott samstarf og sjáumst hress á nýju ári.
Bestu jólakveðjur
Guðbjörg Viðarsd.
Gleðileg jól