Nú er aldeilis gangur í leikritinu okkar  og allt farið að rúlla vel. Við minnum á Generalprufu á mánudaginn kl 9:00 í Félagsheimilinu þar sem allir eru velkomnir, ömmur, afar, mömmur, pabbar og aðrir velunnarar.

Eittvað vantar upp á búninga svo endilega kíkið á tölvupóstinn varðandi það.

Foreldratenglarnir stóðu fyrir bekkjarkvöldi í vikunni þar sem piparkökur og annað góðgæti rann ljúflega niður. Krakkarnir sigruðu aftur þá fullorðnu í Partý-alias, munaði samt ekki miklu núna….sumir ótrúlegar flinkir að giska á rétt svar en líklega átti Marín þó metið þegar hún giskaði á þriggja blaða smára, öllum að óvörum….og fékk rétt!

 

Á mánudaginn mega krakkarnir hafa með sér smákökur í nesti.