Desember er heldur betur kominn og undirbúningur fyrir litlu jólin hafinn. 5. bekkur verður með leikrit á litlu jólunum og við erum byrjuð að æfa það. Allir fengu handrit heim og þurfa að lesa sitt. Varðandi búninga þá hafði ég hugsað mér að allir væru með rauða jólasveinahúfu og annað hvort rauðum fötum eða loðapeysu. Gott ef allir geta hjálpast að við að finna búning.

Við fórum í sleðaferð í dag, allt miðstigið og það mátti sko aldeilis sjá tilþrif í brekkunni.