Nú er tíminn fyrir jólaljósin enda aðventan gegnin í garð. Við erum búin að skreyta svolítið í stofunni okkar, bæði í gluggum og einnig erum við búin að hengja fínheit í loftið. Krakkarnir eru alltaf til í meira (og kannski kennarinn líka) svo eitthvað á eflaust eftir að bætast við. Endilega veitið gluggunum okkar eftirtekt ef þið eigið leið framhjá skólanum. Við erum ánægð með þá.
Í trúarbragðafræðinni lásum við um síðustu skref Ísraelsmanna inn til fyrirheitna landsins. Hvernig þeim tókst að vinna Jeríkó og lýsinguna á gæðum landsins. Hinni löngu ferð Ísraelsmanna er því lokið og þeir loks komnir yfir þrældóm og hungursneyðir.
Í samfélagsfræðinni erum við að fjalla um víkingatímann og nemendur eru að búa til sögu um víkingafjölskyldu sem flytur frá Noregi til nýs lands. Sagan verður svo sett í litla bók sem verður myndskreytt með tölvuskrifuðum texta.
Við fylgjum áætlun í stærðfræðinni og hafa nemendur hamast við undanfarna stærðfræðitíma til að klára sem mest af áætluninni. Einhverir tóku bækurnar með heim til að klára um helgina.
Allir nemendur komu saman á sal í gær, 1. des., en þá var einnig dagur tónlistar. Margar útvarpsrásir útvörpuðu nokkrum lögum á sama tíma og tóku nemendur þátt með því að taka undir með útvarpinu.