Enn er kominn föstudagur og nú bara snjór og pínu kuldi en það er bara skemmtilegt og margir hafa verið duglegir að leika úti í snjónum. Í skólanum er ákveðið svæði þar sem leyfilegt er að fara í snjóstríð og þeir sem hafa áhuga á því fara á það svæði en þeir sem forðast þann leik halda sér fjærri. 5. bekk gengur vel að virða þetta skipulag, að því er ég best veit, og það er gott.
Nú eru annarskil og námsmatið fór heim í gær. Að því tilefni var svolítið uppbrot hjá okkur í 5. bekk í dag og við horfðum á DVD-mynd um Ástrík og Kleópötru. Myndin fellur vel við námsefnið okkar í samfélagsfræðinni þar sem rómverjar og egyptar koma mikið við sögu. Það heyrðist nú eitthvað fuss í bekknum yfir myndavalinu en á endandum held ég að allir hafi verið sáttir við myndina.
Við unnum eins og vanalega eitt og annað í hinum ýmsu námsgreinum. M.a. unnum við með fyrirgefningu, bæði gagnvart örðum og sjálfum okkur í trúarbragðafræðinni. Við lásum sögur þar sem ýmis ljót orð voru látin falla um náungann og svo þurftum við að hjálpast að að leysa málin, koma með hugmyndir og finna lausnir á vanamálunum sem voru í sögunum.
Námsmatið er heill hellingur af blöðum sem nauðsynlegt er að setjast yfir (foreldri og barn). Annað heimanám fór ekki heim þessa vikuna enda mikið að lesa.
Brunaæfing fór fam í dag föstudag. Þá þurftu allir að fara stystu leið út úr skólabyggingunni. 5.bekkur var í Bolafæti svo við hoppuðum út um gluggann og söfuðumst svo saman á planinu fyrir utan íþróttahúsið.