Dagur íslenskrar tungu var heldur betur haldinn hátíðlegur í vikunni. Krakkarnir stóðu sig frábærlega
og foreldrar og annað venslafólk duglegt að koma. Takk kærlega fyrir það!
Skólinn iðaði af lífi þennan dag. Kórar sungu, upplestur var hér og þar,
vöfflur til sölu og ýmis atriði voru í bekkjarstofunum. 5. bekkingarnir voru með þrjú atriði. Fyrst
var glærusýning frá menninga- og skemmtiferðinni til Reykjavíkur í haust.
Nemendur sýndu myndir á skjá og töluðu undir. Næsta atriði var ljóðalestur þar
sem nemendur fluttu ljóðið Móðurást eftir Jónas Hallgrímsson en um leið rúlluðu
myndir á skjá þar sem hver nemandi hafði túlkað sitt erindi á myndrænan hátt.
Síðasta atriðið var svo heimsfrumsýningin á kvikmyndinni Eyðimerkurgangan en
myndin fjallaði um ferð Ísraelsmanna yfir eyðimörkina á leið sinni til
fyrirheitna landsins.
Fyrri hluti vikunnar
einkenndist af undirbúningi fyrir Dag íslenskrar tungu en svo unnum við
hefðbundin verkefni í hinu og þessu eins og vanalega. Þau verkefni falla alveg
í skuggann þessa vikuna enda miðvikudaguinn hápunkturinn.
Myndin hér til hliðar er af vinaverkefni sem 5. bekkur vann í síðustu viku.
Nú standa yfir annaskil
og nemendur skipta um verkgreinar. Námsmatið fer svo heim í lok næstu viku en
þá fá allir nýja námsmatsmöppu.
Góða helgi.
Guðbjörg Viðarsd.,umsjónarkennari