Þá er þessi vika þotin eins og aðrar. Í morgun sagði Laufey Helga bekknum frá ferðinni sem hún fór til Svíðþjóðar og Danmerkur, um daginn. Hún sýndi myndir á skjávarpa og sagði mjög vel frá mörgu. Krakkarnir voru áhugasamir og þá sérstaklega um dýragarðinn .
Vikan einkenndist annars af því að nemendur eru að klára upp ýmist námsefni en einnig tókum við lesskilningspróf.
Með heimavinnunni sem fór heim í gær sagði ég frá því hvenær prófin ættu að vera svo skoðið endilega miðann með heimavinnunni (hann fór líka í tölvupósti í gær). Varðandi íslenskuna er námsefnið: Vandamálið enn í skólanum því við erum að klára að fara yfir nokkrar mikilvægar blaðsíður. Líklega fer bókin heim á mánudaginn. Annars er góður undirbúningur fyrir prófið í málfræðinni að vinna heimavinnuheftið sem fór heim í gær.
Á fimmtudaginn í næstu viku er að sjálfsögu frí því þá er uppstigningardagur en til viðbótar allri venjulegri stundatöflu í næstu viku, þurfa krakkarnir að hafa með sér sundföt á miðvikudaginn því þá stendur til að skreppa í laugina á sundmót.

Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn.
þátttaka á mótinu. Á mótinu voru tveir aldurshópar 3.-7. bekkur annars vegar og 8.-10. bekkur hins vegar og gafst öllum tækifæri á að taka þátt sem vildu. 5. bekkur kom sterkur inn og tóku langflestir nemendur þátt og stóðu sig með prýði. Formleg úrslit hafa ekki verið kunngjörð svo það bíður fram í næstu viku.