Vikan er búin að ganga vel hjá okkur og jákvæðir og duglegir. Sunneva sól sýndi okkur verðlaunin sín og sett var mynd af henni á forsíðu Flúðaskólasíðunnar.
Í stærðfræði héldum við áfram með ummál og flatarmál en nemendur kláruðu lotuna en fengu svo aukahefti til upprifjunar á formúlunum. Þeir klára þetta hefti fyrir miðvikudag í næstu viku en þá er könnun úr efninu.
Í íslensku héldum við áfram að vinna í vinnubók og lesbók þar sem nemendur fengu heimavinnu að lesa og skila verkefni – það voru góð skil hjá öllum – flottir krakkar. Við erum á undan áætlun í íslensku námsefninu sem er frábært.
Í náttúrufræði lærðum við um beinagrind og vöðva en ekki náðu allir að vinna verkefnavinnuna tengda því þar sem norræna skólahlaupið var á sama tíma.
Allir nemendur í 6. bekk hlutu í Norræna skólahlaupinu og voru dugleg að skokka mismunandi vegalengdir. Boðið var upp á 2,5 km, 5 km og 10 km.
Það er snemmbúið helgarfrí að skella á enda eru réttir á morgun. Góða skemmtun og góða helgi.