Þá er nýtt á byrjað og heldur byrjaði það brösuglega hér í skólanum. Veðrið og færð hafa verið að stríða okkur en vonandi er það nú að mestu leyti búið.
Nemendur hafa tekið próf í íslensku og stærðfræði. Nemendur fá stærðfræðiprófin sín til baka í byrjun næstu viku en við höfum verið að fara saman yfir íslenskuprófið.
Á þessari önn ætlum við að leggja áherslu á læsi og hvernig við vinnum með texta. Við erum byrjuð í þessari vinnu og þetta fer vel af stað. Það virðist loða við íslenska nemendur að þeir eigi erfitt með að leita að upplýsingum í texta, vinna úr honum og með hann en þetta ætlum við að laga
..
Ný lota byrjaði í stærðfræðinni þar sem við leggjum áherslu á mælingar og aðgerðir.
Vísindavakan gekk vel í náttúrufræðinni og allir búnir að sýna tilraunir. Við byrjum í eðlisfræði í næstu viku og þá vinnum við með bylgjur og hljóð.
Takk fyrir vikuna og góða helgi.