0

Þorrablogg

Posted by ingibjorg on febrúar 3, 2012 in Uncategorized

Í dag fögnuðu nemendur á miðstigi þorra. Ýmis skemmtiatriði voru í boði og síðan smökkuðu nemendur á þorramat.

Í lífsleiknitíma fengum við köku sem Óskar kom með og horfðum á myndband um upplestur.

Góða helgi

Ingibjörg

 
0

Blogg Tobiasar

Posted by ingibjorg on desember 2, 2011 in Uncategorized

Í vikunni máluðum við glugnana í stofunni. Við gerðum laufabrauð í heimilisfræði.

Síðan var það dagur íslenskar tólistar 1.des. Þá fórum við öll í Kvíadal að hlusta á útvarpið og syngja.

Snjórinn kom loksins og við fórum út að leika okkur en það voru bara strákarnir.

Góða helgi: Tobias

 
1

Föstudagsblogg :) :)

Posted by ingibjorg on nóvember 4, 2011 in Uncategorized

Á mánudaginn fórum við í leiki í íþróttum, við fórum í marga skemmtilega leiki :) .  Á miðvikudaginn héltum við áfram með plaggötin í samfélagsfræði um gömul veldi eins og Asteka og Sonhæ og fleira :D 

Í dag vorum við að halda upp á afmælið hjá Hrafndísi og Bjarti í dönsku.

Anton kom með eina stóra köku, og Þórdís, Ragnheiður og Aníta komu með aðra köku. Við fórum í leiki og borðuðum köku.

Þetta var skemmtileg  vika

Góða helgi, Aníta :D

 
0

Posted by ingibjorg on október 28, 2011 in Uncategorized

Hæhæ :)

Í þessari viku er búið að vera bara skemmtilegt. Þetta var bara svona venjuleg vika nema við fórum á tónlist fyrir alla, þemað var tangó það var gaman við sungum ölllum saman :) . Í íþróttum voru fimleikar við gerðum fullt af einhverju skemmtilegu. í heimilisfrærði gerðum við núðlur með grænmeti og súkkulaðiköku. Í dag kom Hrafndís með köku sem var mjög góð og við fengum mjólkursopa með.

Góða helgi bæbæ :) Þórdís

 
0

Blogg

Posted by ingibjorg on október 21, 2011 in Uncategorized

Í þessari viku fórum við í foreldra viðtal, við fórum í handbolta í íþróttum það var gaman. Við fórum í menningarferð á miðvikudaginn, við stoppuðum fyrir neðan eitthvað hvítt hús og svo löbbuðum við að einhverri alsberri styttu sem hét Móður ást. Svo löbbuðum við að alþingis húsinu síðan að Ráðhúsi Reykjavíkur svo fórum við á Þjóðminjasafnið að skoða. Loksins fórum við á skauta þeim sem vildu var kennt  íshokkí  svo þegar við vorum búin á skautum fórum við heim. Á fimmtudaginn var ekkert að gera og núna eru við í hengiman nú er vikan búin LOKSINS!!!

Góða helgi,

Anton

 
0

Vikan okkar

Posted by ingibjorg on október 14, 2011 in Uncategorized

Þessi vika var alveg ágæt við fórum í blak í íþróttum og bökuðum rúllutertu og hafrakex. Við fórum í próf í dönsku og líka í lestrarpróf  þau voru alveg fín. Annars var ekkert sérstakt að gera í skólanum við ætluðum að planta epla trjám en fimmti bekkur sá um það .

Svava Lovísa

 
0

Óskar bloggar

Posted by ingibjorg on september 30, 2011 in Uncategorized

Við erum búin að fá nýtt námsefni og erum búin að vera læra og læra. Á fimmtudaginn elduðum við kjöt grænmetis súpu og á föstudaginn bakaði Viktor köku.

Góða helgi:-)

 

 
0

Ofurblogg Hrafndísar !!!! :D

Posted by ingibjorg on september 23, 2011 in Uncategorized

Halló allir saman núna ætla ééég (Hrafndís) að blogga :D Ég ætla að blogga um þessa og síðustu viku af því að við vorum í réttarfríi þá :D En ég ætla fyrst að blogga um réttar vikuna ! Það byrjaði bara með venjulegri viku eins og vanalega EKKERT spennandi hehe djók :D en við fórum bara í tíma og í íþróttir og eitthvað þannig. Á þriðjudaginn var það nú bara alveg eins og á mánudaginn bara ekki alveg sömu tímar !! :D Á miðvikudaginn var verkstæði og svona en á fimmtudaginn var mjög gaman af því það voru svo margir að fara með safni svo það var bara hálfur bekkurinn ÞAÐ VAR STUÐ hehe :D en við fórum í sund og verkstæði, ég datt á hjóli en það var ekki gaman reyndar hehe :s en það var fyndið hehe :D Þessi dagur var bara til hádegis svo við fórum bara í verkstæði, sund og íslensku og fengum frjálst í tölvum í íslensku hehe :D en á föstudeginum voru réttir og þá var frí :D stuuuð :D Á mánudaginn í þessari viku var bara venjulegur dagur alveg eins og þriðjudagur og miðvikudagur en á fimtudaginn var samræmtpróf aaaaa :( í íslensku AAAA :( :D oog á föstudaginn sem sagt í dag fórum við í samræmtpróf í stærðfræði eeeen þá meira aaaaaaaaaa :( :s en nú þarf ég að hætta að blogga svo ég segi bara BÆBÆ :D

 
0

Blogg vikunar :D

Posted by ingibjorg on september 9, 2011 in Uncategorized

Í vikunni vorum við að búa til veggspjöld í samfélagsfræði um hjátrú, Heklu, torfbæi og þjóðsögur úr hreppnum. Í íþróttum vorum við að prufa kringlukast og 1000m hlaup. Í náttúrufræði voru við að læra um hjartað og í tölvutíma vorum við svo að blogga um það.

Góða helgi- Ragnheiður Björk:)

 
0

Fyrsta bloggið :)

Posted by ingibjorg on september 1, 2011 in Uncategorized

Jæja þá er skólinn byrjaður aftur.

Við komum í skólann á mánudaginn í seinustu viku bara samt í smástund. Skólasjórinn byrjaði að tala eitthvað og svo fórum við inn í stofuna okkar með nýja umsjónarkennaranum okkur það er Ingibjörg. Það var annars mjög gaman að koma í skólann aftur fyrir suma og koma og hitta alla krakkana. En sumir hlökkuðu bara til að hitta alla en ekki læra!. Ejnar er líka fluttur til Danmerkur. Svo var bara venjulegur dagur á þriðjudaginn. Það er kominn nýr kennari í dönsku það er Evelyn og líka í stærfræði hún Jenný okkar er farinn frá okkur og Magga er stærðfræði kennarinn okkar núna. Nú er komið smá breyting í íþrótta tímunum að þeir eru tvisar í viku og það er líka bara gaman :D

Svo átti Aníta afmæli á sunnudaginn 28.ágúst og í dag komu þjár stelpur með köku handa henni og öllum í bekknum sem áttu afmæli í sumar. Allir í bekknum fengu eina sneið :) Takk fyrir kökuna Hrafndís, Þórdís og Ragnheiður þessi kaka var mjög góð;)

Kveðja,

Hrafnhildur

Copyright © 2010-2012 7. bekkur All rights reserved.
Desk Mess Mirrored version 1.9 theme from BuyNowShop.com.