vikan

Þessi vika var ósköp venjuleg við vorum bara að vinna í bókum. Við ákváðum að gera svona að láta ljós okkar skína og Guðleif lét ljósið skína þessa viku hún kynnti hundinn sinn Töru Álfadís. Í heimilisfræði gerðum við mjög góða gúllassúpu og víkingabrauð. Um helgina skipuleggja bekkjarfulltrúarnir hallowean kvöld fyrir 7.bekk.

kv.Einar

Blogg:) Andrea:)

Á mánudaginn vorum við bara í venjulegum skóladegi lærðum og lærðum.

Á þriðjudaginn vorum við líka bara að læra og læra:Þ

Á miðvikudaginn fórum við til  Reykjavíkur í menningarferð. Við fórum með of lítilli rútu þannig að við þurftum að skipata um rútu á Selfossi en hún var hörð og með ömurleg belti:)

Þegar við vorum komin til Reykjavíkur fórum við úr rútunni við Arnarhól og löbbuðum að Ráðhúsi Reykjavíkur. Þar hittum við konu sem var með Ingibjörgu í bekk og hún heitir Björk. Hún sýndi okkur sal þar sem Jón Gnarr og allt hitt fólkið fundar, Borgarstjórn Reykjavíkur. Við fengum líka kókostoppa og appelsínu safa. Eftir þetta gengum við í Þjóðminjasafnið og skoðuðum sýninguna þar. Við fengum líka að borða nestið okkar þar og fórum í leiki á meðan við vorum að bíða eftir rútunni. Svo fórum við í rútuna og í keilu. Eftir keiluna fórum við í rútuna og lögðum við af stað heim:D

Á fimmtudag var tónlist fyrir alla og það komu fiðluleikari og gítarleikari og spiluðu fullt af lögum fyrir okkur.

Góða helgi:)

Blogg

Á mánudaginn voru kennaraviðtöl. Á þriðjudaginn fóru nöllarnir okkar sem eru að fara í áttundarbekkjarnámsefni í próf. Miðvkudagur:Var próf í dönsku sem allir tóku. Fimmtudagurinn voru enginn próf. Við fórum í heimilisfræði og gerðum ekki góða klatta. Föstudagurin gerðum við verkefni sem heitir hvar er drengurinn?

Góða helgi kv.Elís.

Blogg blogg!!!

Við fengum eins og vanalega vikuáætlun og byrjuðum  á henni da da dada da!

Í náttúrufræði byrjuðumvið á plakötum.

Kennararnir í verkstæði fyrir utan Sigríði Helgu voru veikir svo við fengum frjálst svo við spiluðum bara á spil. Einnig var geðveik Miðstigsgleði með fullt af mótum.

Hjá helmingnum var frjálst í seinni tímanum í íslensku á fimmtudaginn  en elduðum í heimilisfræði.

Það var frí á föstudaginn.

Þetta er blogg síðustu viku því tölvan var að stríða Ingibjörgu sem var geðveikt fyndið.

Kv.

Rúnar(:

Föstudags blogg

Nú sitja nemendur í 7. bekk í samræmdu stærðfræðiprófi. Í gær var samskonar próf í íslensku. Í hléi milli prófhluta fá nemendur veitingar sem eldhúskonurnar hafa töfrað fram. Mikil ánægja er með það hjá nemendum.

Í næstu viku verður kennaraþing eftir hádegi á fimmtudegi og föstudag. Enginn skóli verður því frá hádegi á fimmtudegi. Vonandi finnum við tíma til að blogga fyrri part vikunnar.

Gaman væri fyrir okkur að sjá hvort einhverjir foreldrar eða aðrir lesa þetta blogg. Ef einhver les þetta er sá hinn sami beðinn að skilja eftir athugasemd.

Kveðja,

Ingibjörg

Erla bloggar.

Í þessari viku höfum við gert  margt t.d á mánudaginn unnum við mest í upprifjun fyrir samræmd próf og líka bara í bókum. En á þriðjudaginn löbbuðum við upp á Miðfell sem var svakalega frískandi og mest fyrir Kristínu og  Håkon.  Á miðvikudaginn vorum við í verkstæði sem sagt handavinna, smíði og myndmennt. Við vorum líka í stöðvavinnu í náttúrufræði og í hópavinnu í samfélagsfræði.  Á fimmtudaginn fór annar hópurinn í heimilisfræði útí skóg að steikja hálfmána en hinn hópurinn gerði rúllutertu og kex. Unnum við verkefni og vorum í íþróttum í leikjum og einn leikurinn hét ræningjar og hermenn. Við að leggja af stað upp á Miðfell.

 

Við allveg að koma upp á Miðfell.

Kveðja Erla

7. bekkur bloggar

Góðan dag.

Nú ætlum við að gera tilraun til að vera dugleg að blogga. Ég hef hug á að láta nemendur sjá um bloggið og munu þau nota tíma á föstudögum til þess. Gaman væri að fá viðbrögð frá foreldrum þannig að við sjáum að einhverjir fylgjist með því sem sett verður hér inn.

Næsta föstudag eru réttir þannig að fyrsta nemendablogg verður föstudaginn 17. september.

Kveðja,

Ingibjörg

Hello world!

Welcome to Bekkir.fludaskoli.is Blogs. This is your first post. Edit or delete it, then start blogging!