Uncategorized

Föstudagsblogg

Á miðvikudag fengum við væntanlega nemendur í 8. bekk í heimsókn. Tveir nemendur þær Ninna Ýr og Anna Marý höfðu undirbúið ratleik um skólann til að þau lærðu hvar þau eiga eftir að vera næsta vetur.

Nemendur eru duglegir að koma á hjólum í skólann og í morgun ræddum við mikilvægi þess að nota hjálma. Ég hvatti krakkana til að venja sig á að nota hjálma og bendi á póst sem sendur var til allra foreldra um hjálmanotkun. Ég hvet foreldra til að athuga hvort hjálmar barnanna eru í lagi og bæta úr ef eitthvað er að. Við viljum öll að börnin noti öryggisbelti í bílum og hjálmar eru líka nauðsynleg öryggistæki.

Nú er bara ein „venjuleg“ vika eftir af skólanum og síðan tekur við skógarvinna og námsmat að ekki sé minnst á ferðalög og vordag. Ég minni enn og aftur á mikilvægi þess að koma rétt klædd í skólann því útivist verður mikil það sem eftir er af skólanum.

Góða helgi

Ingibjörg

Föstudagsblogg

Góðan dag.

Í dag kveðja nemendur í sjöunda bekk hann Óskar sem er að flytja til Bandaríkjanna. Af því tilefni bökuðu tvær stelpur skúffuköku og gæddu nemendur sér á köku og mjólk núna í morgunsárið.

Í vikunni gerðu nemendur myndband til að senda í keppnina Reyklaus bekkur og við bíðum spennt eftir að heyra hvernig því gengur í keppninni.

Nú er vonandi farið að vora og með vorinu koma fleiri dagar þar sem hægt er að vera úti við og mikilvægt er að nemendur komi klæddir eftir veðri.

Góða helgi

Ingibjörg

Kennarablogg

Í dag ætlar miðstig Flúðaskóla að blóta Þorra. Nemendur sjá sjálfir um að leggja á borð og skera matinn niður. Skemmtiatriði í boði bekkjanna eru að sjálfsögðu á sínum stað.

Nemendur eru byrjaðir að undirbúa sig fyrir Stóru upplestrarkeppnina sem fer fram um miðjan mars. Áður en kemur að lokakeppninni, sem verður að Borg, þarf að velja fulltrúa skólans og verður það gert í byrjun mars. Nemendur eru almennt duglegir að æfa sig og vita að æfingin skapar meistarann.

Næsta vika er síðasta vika fyrir vetrarfrí og eitthvað verður um námsmat hjá nemendum en kennarar láta vita af því.

Kveðja,

Ingibjörg

Blogg Söru.

Á miðvikudag ég var í náttúrufræði að gera verkefni um sólkerfið og þegar ég var búin þá var að sýna það sem ég bloggaði og það var mynd af sólkerfinu okkar og annað sólkerfi nálægt okkar sólkerfi og sólin þar er rauð og 4 plánetur og ein jörð.

Kveðja, Sara

Anna Marý bloggar

Í þessari viku var ósköp venjuleg skólavika.

Á þriðjudaginn kom snjórinn og það þótti mörgum gaman en hann fór daginn eftir.

Á mánudaginn og miðvikudaginn í Náttúrufræði var vísindavaka og í henni völdu allir sér tilraun og sýndu hana fyrir bekkinn sinn. Hægt er að sjá myndir á náttúrufræðibloggsíðunni.

Í dag er bóndadagur og mættu margir með bindi í skólann.

KV. Anna Marý

Ninna bloggar

Í þessari viku lærðum við og máluðum og skreyttum stofunna okkar. Á fimmtudaginn steiktum við laufabrauð og nú erum við að undirbúa litlu jólin. Helgi las skemmtilega sögu um kúna fyrir okkur.

kv Ninna

Selmu blogg !!!

Hæ Hæ

Á mánudaginn og þriðjudaginn voru venjulegir dagar og við gerðum ekkert sérstakt.

Á miðvikudaginn var miðstigsgleði og þar var haldin kosning, hver ætti að fara í nemendaráðið. Stefanía og Elís unnu.

Á fimmtudaginn var píptest í íþróttum og það gekk mjög vel hjá öllum.

Í dag er föstudagur og Erla kom með harmonikuna sína og spilaði fyrir okkur það var mjög flott hjá henni, hún sagði okkur líka frá harmonikunni og það var mjög fróðlegt.

Kveðja Selma  

 

Guðleif bloggar

 Hæhæ

Á þriðjudaginn var Dagur íslenskrar tungu. Miðstigið var með dagská fyrir hádegi 5.bekkur lék málshætti, 6.bekkur sagði frá skrítnum orðum sem Halldór Laxness notaði eins og kotrass, apaspil og fleira, við lásum ljóð í tilefni af því að stóra upplestrarkeppnin byrjaði . 

Á fimmtudaginn fengum við einkunir úr samræmdu prófunum sem við erum búin bíða lengi eftir, í heimilisfræði krufðum við fisk. Á föstudaginn skiptum við svo um sæti í lífsleikni.

kv. Guðleif Aþena

Helgi bloggar

Þetta var ósköp venjuleg skólavika en ekki var skóli á miðvikudaginn. Á fimmtudaginn var venjulegur dagur. En 9. og 10. bekkur voru á Blítt og létt á Laugarvatni. Það þýddi að við fengum að fara á opið hús. Ég held að öllum hafi fundist það skemmtilegt.

Kv.Helgi

Vikublogg Kristínar

Halló!

Í þessari viku vorum við að gera margt skemmtilegt.

Á mánudaginn vorum við að læra og við fengum nýja vikuáætlun í íslensku.

Á þriðjudaginn vorum við að læra meira og Ingibjörg las um skáldin sem koma í heimsókn í dag.

Á miðvikudaginn fórum við í heimsókn í Þjórsárskóla að hitta krakkana sem  koma í skólann á næsta ári. Við lærðum með þeim og skoðuðum svo skólann. Svo fórum við í brennó og svo fórum við í pizzu veislu.

Á fimmtudaginn lærðum við og fórum í íþróttir og fórum í seinasta tíman í okkar fagi í verkstæði.

Í dag sagði Ylfa okkur frá naggrísunum sínum og svo kom Kolbrún að tala við okkur um ofvirkni, athyglisbrest og lesblindu. Á eftir koma skáld í skólan og við förum að hlusta á þau.

Góða helgi!

Kristín