http://bekkir.fludaskoli.is/1998/2010/11/05/vikublogg-kristinar/
Halló!
Í þessari viku vorum við að gera margt skemmtilegt.
Á mánudaginn vorum við að læra og við fengum nýja vikuáætlun í íslensku.
Á þriðjudaginn vorum við að læra meira og Ingibjörg las um skáldin sem koma í heimsókn í dag.
Á miðvikudaginn fórum við í heimsókn í Þjórsárskóla að hitta krakkana sem koma í skólann á næsta ári. Við lærðum með þeim og skoðuðum svo skólann. Svo fórum við í brennó og svo fórum við í pizzu veislu.
Á fimmtudaginn lærðum við og fórum í íþróttir og fórum í seinasta tíman í okkar fagi í verkstæði.
Í dag sagði Ylfa okkur frá naggrísunum sínum og svo kom Kolbrún að tala við okkur um ofvirkni, athyglisbrest og lesblindu. Á eftir koma skáld í skólan og við förum að hlusta á þau.
Góða helgi!
Kristín
One Comment
Alltaf nóg að gera hjá ykkur. Kveðja Heiða