http://bekkir.fludaskoli.is/1998/2010/10/22/blogg-andrea/
Á mánudaginn vorum við bara í venjulegum skóladegi lærðum og lærðum.
Á þriðjudaginn vorum við líka bara að læra og læra:Þ
Á miðvikudaginn fórum við til Reykjavíkur í menningarferð. Við fórum með of lítilli rútu þannig að við þurftum að skipata um rútu á Selfossi en hún var hörð og með ömurleg belti:)
Þegar við vorum komin til Reykjavíkur fórum við úr rútunni við Arnarhól og löbbuðum að Ráðhúsi Reykjavíkur. Þar hittum við konu sem var með Ingibjörgu í bekk og hún heitir Björk. Hún sýndi okkur sal þar sem Jón Gnarr og allt hitt fólkið fundar, Borgarstjórn Reykjavíkur. Við fengum líka kókostoppa og appelsínu safa. Eftir þetta gengum við í Þjóðminjasafnið og skoðuðum sýninguna þar. Við fengum líka að borða nestið okkar þar og fórum í leiki á meðan við vorum að bíða eftir rútunni. Svo fórum við í rútuna og í keilu. Eftir keiluna fórum við í rútuna og lögðum við af stað heim:D
Á fimmtudag var tónlist fyrir alla og það komu fiðluleikari og gítarleikari og spiluðu fullt af lögum fyrir okkur.
Góða helgi:)
2 Comments
Mikið hefur verið gaman hjá ykkur í reykjavíkurferðinni, það hefði verið gaman að vera með!
Ekkert smá gaman hjá ykkur
Kveðja Heiða