9. desember

Skrifað 9. desember, 2010 af hallasigga

Í síðustu viku tóku nemendur í 8. bekk að sér að skreyta náttúrufræðistofuna og tónastaði fyrir jólin..  Það gekk vel og myndirnar prýða skólann okkar… 

Á eftir erum við að fara út í Reykholt á jólahlaðborð og svo í sund.  Margrét ætlar að keyra okkur og eins og vanalega gefur hún bæði bensín og vinnu….. við þökkum fyrir það hér í 8. bekk.

Við ákváðum í lífsleikni tímanum í morgun að hafa pakkaleik á litlu jólunum svo að allir þurfa að koma með pakka.  Hægt er að skila þeim til umsjónarkennara hvenær sem er í þessari eða í næstu viku, bara að passa að þeir komi fyrir föstudag.  Samþykkt var að miðað yrði við að gjafirnar kostuðu ekki meira en 500 kr.

Bestu kveðjur og góða helgi.

18. nóvember – vikupistill

Skrifað 19. nóvember, 2010 af hallasigga

Vikan hefur verið frekar róleg hjá okkur.  Ný önn byrjaði og nemendur fengu námsmatsmöppurnar í dag og þurfa að skila þeim aftur til umsjónarkennara fyrir næsta föstudag.

12. nóvember – vikupistill

Skrifað 12. nóvember, 2010 af hallasigga
Nemendur eru búnir að sitja sveittir við að klára ritgerðir og verkefni sem þurfti að klára fyrir annarskil en núna er fyrstu önninni lokið hjá nemendum og ný önn hófst í gær. 

Halla Sigga að fara yfir verkefni

Nú sitja sveittir kennarar að fara yfir verkefni og  færa inn í mentor einkunnir nemenda (er í verkefnabókum og um að gera að kíkja). 

Ég ætla að skila nemendum ritgerðunum sínum sem þeir skrifuðu um frumur næsta mánudag og fer vel yfir með hverjum og einum fyrir hvað verið er að gefa einkunn (rökstyð einkunn).  Nemendum gefst kostur á að hafa áhrif á einkunn ef þeir eru ekki sáttir við niðurstöðuna. 

 Ég ætla einnig að gera önnina aðeins upp með hverjum nemanda og fara vel yfir stöðu hvers og eins…..  Hlakka til þess.
Annars segi ég bara takk fyrir vikuna og góða helgi.

5. nóvember – vikupistillinn

Skrifað 5. nóvember, 2010 af hallasigga

Vikan er búin að vera viðburðarrík. 

Á mánudag komu til okkar gestir með forvarnarfræðslu þar sem farið var yfir ýmis mál, s.s. áfengis- og fíknefnafræðslu, ábyrga kynhegðun og samkynhneigð.  Rósa, Dúa og Kristmundur Axel (bróðir Dúu) voru gestir okkar og deildu þeir með okkur reynslu sinni af þessum málum. Rósa og Dúa vinna báðar á heimili fyrir langt leidda alkóhólista, eru óvirkir alkóhólistar og aðstandendur. Rósa er jafnframt lærður meðferðarfulltrúi fyrir HIV smitaða.

Við æfðum okkur að rökræða í lífsleikni og hóparnir mæltu með eða á móti lengingu skólaárs..  Það gekk vel en við ætlum nú samt að æfa okkur betur í því að færa rök fyrir skoðunum okkar og standa með því sem okkur finnst án þess að dæma skoðanir annarra.

Í náttúrufræði eru flestir að leggja lokahönd á ritgerðirnar sínar sem skila á næsta þriðjudag.  Gott er að lesa vel fyrirmælin um skilin á heimasíðu náttúrufræðinnar svo að leturstærð og bil og annað sem skiptir máli sé á hreinu.

Í landafræði byrjuðu nemendur á veggmyndum sem þeir gera um Evrópu og næsta þriðjudag er próf þar sem áherslur eru á löndin í Evrópu, höfuðborgirnar, ár, fjöll og eyjur í Evrópu.

Nemendur voru að ljúka lotu í íslensku og í dag var lotupróf.  Þeir byrja því í nýrri lotu í næstu viku.

 SKEMMTUN – SKEMMTUN

Söngkeppni Zero fer fram í Árnesi í kvöld, 5. nóvember og hefst kl. 19:00.  Tíu atriði eru skráð til keppni og sá sem vinnur keppir fyrir hönd Zero í söngvakeppni Samfés.  Eftir söngvakeppnina er neonball í Árnesi en Kristmundur Axel, sigurvegari í  Söngvakeppni Framhaldsskóla 2010 ætlar að koma og syngja nokkur lög, en hann var einn af þeim sem koma síðastliðinn mánudag með forvarnafræðsluna ásamt Rósu og Dúu systur sinni.  Annars mun Basic House Effect sjá um tónlistina.

Takk fyrir vikuna og góða helgi.

29. október – vikupistill

Skrifað 29. október, 2010 af hallasigga

 

Vikan var frekar róleg hjá okkur en í dönsku var áherslan á afmælisveislur og í gær var svo haldið upp á afmæli Eyrúnar á dönsku :)   

Í náttúrufræði eru allir sveittir við að skrifa ritgerð um frumur, rosa gaman…   

Í lífsleikni í gær komu Árni og Mummi húsvörður í heimsókn og kenndu okkur mannganginn í skák.  Flestir þóttust nú kunna eitthvað svo að allir tefldu nokkrar hraðskákir og  mér sýndist að allir hefðu gaman af.  

Takk fyrir vikuna og góða helgi.

20. október

Skrifað 20. október, 2010 af hallasigga

Í dag fengum við gesti frá Afríku sem kynnti fyrir okkur land og þjóð.  Gestirnir koma á vegum hjálparstarfs kirkjunnar sem eru í samstarfi með Hjálparstarfinu í Afríku. Fermingarbörn sjá um söfnun á hverju ári fyrir Hjálparstarfið í Afríku þar sem peningnum er varið í betra aðgengi að vatni.  Í fyrra söfnuðu fermingarbörn á Íslandi 8,2 milljónum króna sem er dágóð upphæð og getur hjálpað mörgum. 

Allir fylgjast áhugasamir með.

Gestirnir sem komu heita Stephen Ssenkima og Charity Namara og eiga það sameiginlegt að hafa misst foreldra sína mjög ung úr alnæmi og síðan þurft að sjá systkinum sínum fyrir mat og menntun.  Stephen fékk svo aðstoð frá kirkjunni til að mennta sig og lauk námi í hagfræði og þróunarfræði.  Hann er nú framkvæmdarstjóri RACOBAO – samtakanna sem eru samstarfsaðilar hjálparstarsfsins í Úganda.  RACOBAO – samtökin styrktu svo Charity í Háskóla sem hún er ennþá í.  Hún er aðeins 21 árs og sér auk þess um tólf yngri systkini sín.  

Aðgengi að vatni er mjög takmarkað í mörgum þorpum í Úganda eins og þeim þorpum sem Stephen og Charity koma frá. það þarf að ganga langar vegalengdir til þess að nálgast það í vatnsbólum en vatnið er mengað, þar sem það er yfirborðsvatn eða rigningarvatn.      

Stephen og Charity

 Það fyrsta sem þau tóku eftir þegar þau komu til Íslands var vatnið okkar sem við teljum sjálfsagt.  Það var gaman að hlusta á þau og ég held að við lærðum heilmikið o.þ.á.m. að þakka fyrir það sem við höfum.     

Hægt er að leita sér upplýsingar inni á vef hjálparstarfs kirkjunnar ef þið viljið vita meira.

Vikupistill – 15. október

Skrifað 15. október, 2010 af hallasigga

Vikan byrjaði á foreldradegi þar sem foreldrar og nemendur mættu í viðtöl hjá umsjónarkennurum. Að sulla í pottinum í Kerlingarfjöllum

Síðastliðinn miðvikudag var bleikur dagur í tilefni af sölu bleiku slaufunnar, söfnunarátaki Krabbameinsfélags Íslands gegn krabbameini.  Nemendur og starfsmenn voru hvattir til að koma í einhverju bleiku eða með eitthvað bleikt. Þetta tókst mjög vel og mættu margir bleikir í skólann.

2. hlekk í náttúrufræði lauk í dag og við byrjum í 3. hlekk næsta mánudag, hægt að skoða það nánar á náttúrufræðiheimasíðunni.

Í næstu viku fáum við heimsókn, en það eru tveir aðilar sem koma frá Afríku til að kynna land og þjóð.

8. október – vikupistill

Skrifað 8. október, 2010 af hallasigga

Um síðustu helgi fengu nemendur langa helgi vegna kennaraþings en þeir voru komnir í frí um hádegi á fimmtudeginum 30. sept.  Þeir mættu þess vegna úthvildir og hressir á mánudagsmorgninum 4. okt. tilbúnir í verkefni vikunnar. 

Vikan er búin að vera ósköp venjuleg nema kannski að bekkurinn gerði stóra tilraun á þriðjudagsmorgninum, en þeir eimuðu sígarettur til þess að skoða aðeins efnin í sígarettunum og finna lykt af eiturgufunum sem koma úr þeim.  Þetta er liður af forvarnarstarfi okkar hér í skólanum og hefur verið gert  í Flúðaskóla í nokkur ár.  Nemendur blogguðu um tilraunina og skiluðu svo stórri skýrslu í dag.  Myndir og upplýsingar um þetta er hægt að finna á Náttúrufræðiheimasíðunni okkar.

Næsta mánudag er ekki kennsla í skólanum heldur foreldradagur þar sem foreldrar og nemendur hitta umsjónarkennarann og þá verður farið yfir það starf sem þegar er byrjað og rætt um framhaldið.  Nemendur unnu leiðsagnarmat á Mentor en það gefur okkur kennurum góða hugmynd um líðan nemenda hér í skólanum. 

Bestu kveðjur og  góða helgi.  Sjáumst hress á mánudag í foreldraviðtali.

30. september – vikupistill

Skrifað 30. september, 2010 af hallasigga

Skvísur á busaballi

Vikan er búin að vera róleg og er frekar stutt þar sem kennarar fóru á kennaraþing í Hveragerði í dag og eru þar einnig á morgun.  Þá fá nemendur frí í skólanum :( …..  

Í kvöld er diskótek á vegum félagsmiðstöðvarinnar á Flúðum.

 

24. september

Skrifað 24. september, 2010 af hallasigga

Þá er enn ein vikan búina og ekki hægt að segja annað en að hún hafi verið frekar róleg.  Enginn uppákoma var nema félagsmiðstöðin Zero er auðvitað alltaf opið og svo var opið hús í gærkveldi.

Í náttúrfræði erum við að læra um efnisheiminn og í næstu viku lærum við um lotukerfið.  Í dönsku horfðum við á myndina Den eneste ene auk þess að vinna í vinnubækurnar okkar og í ensku áttum við að vera búin með verkefni 8,9 og 11 á bls. 13 í Matrix Student´s book.  Stærðfræði gengur vel og allir þar á tímaáætlun og svo í landafræði var farið yfir staðsetningaræfingar.

Takk fyrir vikuna og góða helgi.

Auðvita allir í snjókast fyrst það fannst ögn af honum