Skrifað 26. maí, 2011 af hallasigga
Þá er allri hefðbundri kennslu lokið og við notum dagana í göngutúra, leiki og annað starf. Í gær gengum við á milli kirkna, þ.e. frá Hrunakirkju niður að Hrepphólakirkju og þá göngum við niður með Laxá. Þetta var auðvitað mjög gaman og í lok göngunnar fengum við okkur pylsur/pulsur.
Í dag voru 8. bekkur og 9. bekkur saman og í fyrstu tveimur tímunum var spurningakeppni þar sem nemendur svöruðu spurningum tengdum íslensku, stærðfræði, náttúrufræði og samfélagsfræði, MJÖG GAMAN að sjá hvað allir kunna mikið. En svo á morgun er vordagur þar sem nemendur þurfa að leysa margskonar þrautir á mismunandi stöðvum og fá stig fyrir leystar þrautir. Þeir sem fá flest stigin vinna og fá verðlaun.
Myndirnar hér fyrir neðan eru teknar í göngunni á milli kirkna.
Í lokin ætla ég að þakka nemendum 8. bekkjar og aðstandendum þeirra fyrir frábært samstarf í vetur. Takk fyrir mig og gleðilegt sumar.


Hrepphólahnjúkarnir í baksýn

Hópurinn samankomin nema Andrea var ekki með
Skrifað 28. apríl, 2011 af hallasigga
Í dag fengum við kökur og gos í fyrsta tímanum. Hún Olga er að flytja til Ameríku og við ákváðum að halda pínulítið kveðjupartý í morgunsárið.





Skrifað 13. apríl, 2011 af hallasigga
Nú styttist í árshátíð hjá unglingadeild Flúðaskóla. Æfingar hjá 8. bekk eru í fullum gangi. Jóhann og Ágúst sinna störfum sviðsmanns og tæknimanns svo þeir leika ekki í sýningaratriðum bekksins. Nemendur eru duglegir og jákvæðir og gaman að vinna með þeim þó kennari og nemendur hafi nú ekki alltaf sama húmorinn….
Ég vona bara að sjá sem flesta enda verður gaman annað kvöld.
Að lokum vil ég þakka öllum fyrir vikuna og óska öllum gleðilegra páska.
Skrifað 8. apríl, 2011 af hallasigga
Nú styttist í páskafrí í skólanum og næsta fimmtudag er árshátíð unglingadeildar Flúðaskóla. Nemendur í 8. bekk verða með nokkur stutt skemmtiatriði, bæði leikin og lesin en við erum byrjuð að æfa og allt gengur mjög vel.
Við erum að ljúka þemaverkefninu um Hvítá og það hefur gengið vel. Við höfum unnið með jarðfræðina, líffræðina og rafmagnið.
Takk fyrir vikuna og góða helgi.
Skrifað 18. mars, 2011 af hallasigga
Vikan er búin að vera góð.
Við erum nokkurn vegin búin að ákveða hvað við ætlum að gera í vor en það er að fara í Adrenalíngarðinn á Nesjavöllum.
Næsta þriðjudag er Halldórsmótið, þ.e. skákmót til minningar um Halldór húsvörð og allir í 8. bekk skráðu sig á mótið.
Við erum byrjuð í þemaverkefni um Hvítá þar sem við fjöllum um jarðfræðina, líffræðina og eðlisfræðina. Við missum reyndar eitthvað af tímum vegna skákmóts og svo heimsóknar í Skálholt, en það er nú lítið mál.
Takk fyrir vikuna og góða helgi.
Skrifað 10. mars, 2011 af hallasigga
Í þessari viku í náttúrufræðinni ljúkum við eðlisfræðihlekknum í náttúrufræði og erum að byrja í þemaverkefni um Hvítá í næstu viku. Við tökum fyrir jarðfræðina, líffræðina, umhverfið og eðlisfræðina í og við Hvítá.
Lotupróf í íslenskunni hafa gengið brösuglega þar sem flensufaraldur hefur geisað hér í skólanum og bæði kennarar og nemendur búnir að vera frá til skiptis. Vonandi fer nú heilsan eitthvað að batna.
Við rifjuðum upp mannganginn í skák í dag vegna þess að bráðlega verður skákmót hér í skólanum, þ.e. Halldórsmótið, til heiðurst Halldóri Gestssyni húsverði. Vonandi skrá sig sem flestir.
Næsta mánudag verða 8. bekkjar nemendur í Skálholti allan daginn.
Við erum að skoða hvað við ætlum að gera í vor,,, hér eru hugmyndir.
http://www.adrenalin.is/index.php?option=com_frontpage&Itemid=37
og
http://www.arcticrafting.is/
Skrifað 28. febrúar, 2011 af hallasigga
Það hefur nú verið frekar rólegt hér hjá okkur síðan við komum úr vetrarfríinu. Ný önn er þó byrjur og nemendur fengu námsmatsmöppurnar sínar með sér heim þriðjudag í síðustu viku og svo á fimmtudag voru foreldraviðtöl.
Í þessari viku stendur mikið til en næsta fimmtudag fer unglingadeildin til Reykjavíkur að styðja við bakið á þeim sem keppa í skólahreysti og fer allur dagurinn í það. Svo næstu helgi er samfés hátíðin þar sem félagsmiðstöðvar um allt land hittast og skemmta sér saman.
Skrifað 16. febrúar, 2011 af hallasigga
Nú er að vetrarfríinu að ljúka og allir mæta auðvitað endurnærðir eftir fríið.
Vikuna fyrir vetrarfrí voru nemendur með menningardag þar sem þeir seldu kökur, kaffi, voru með tombólu, Anna og Jón Hermann spiluðu á gítar, Hugrún á píanó og Jón Gunnar á trommur. Einnig var bingó, Ásadans og Tvister leikur svo það var mikið um að vera og mjög gaman. Nemendur söfnuðu 42.000 kr. svo við ættum að komast í fínt vorfrí þegar það fer að vora.
2. önn lauk síðasta föstudag og 3. önn byrjar á morgun. Nemendur fá vitnisburðinn með sér heim þriðjudaginn 22. febrúar og á fimmtudag í sömu viku eru foreldraviðtöl í Flúðaskóla, þ.e. 24. febrúar.
Skrifað 28. janúar, 2011 af hallasigga
Síðustu tvær vikur höfum við verið ýmislegt að bralla. Nemendur æfðu sig í að halda ræðu undir leiðsögn Hjartar (Bárusonur) og héldu svo glimrandi ræði í tvær mínútur hver síðastliðinn mánudag. Hjörtur og Bára hlustuðu og dæmdu. Nemendur voru til sóma og komu vel undirbúnir enda gekk þeim vel við flutninginn í alla staði. Það var frábær skemmtun að fylgjast með þeim hvað þeir voru flottir.
Vísindavakan í náttúrufræði gekk vel og nemendur skiluðu af sér tilraununum í síðustu viku og skýrslum síðastliðinn mánudag (en þær voru í formi bæklings að þessu sinni og tengist þ.m. UT).
Í gær héldum við áfram að undirbúa menningarkvöld sem áætlað er að halda 9. febrúar en nemendur sjá alfarið um undirbúning og framkvæmd. Þeir ætla að hafa tónlist, leiki, tombólu, kökur og kaffi. Menningarkvöldið er liður í fjáröflun bekkjarins vegna vorferðar.
Læt þetta gott heita…. Takk fyrir vikuna og góða helgi.
Skrifað 14. janúar, 2011 af hallasigga
Gleðilegt ár allir saman.
Nýja árið byrjaði nú nokkuð vel hjá okkur. Á þrettándanum fóru allir nemendur og starfsfólk skólans í skóginn og kvöddum jólin með samveru og söng.
Síðasta vikan var svo nokkuð hefðbundinn hjá okkur og kennsla byrjuð á fullu. Við í 8. bekk ákváðum í lífsleiknitímanum í gær að vera með menningarkvöld 9. febrúar þar sem nemendur ætla að safna sér pening svo við komust í einhverja skemmtilega ferð í vor. Nemendur sjá alfarið um skipulagningu og undirbúning.
Í dag kom gestakennari til okkar sem heitir Hjörtur Eyþórssona og ætlar að hann að kenna okkur að koma fram, þ.e. halda ræður og rökræða. Hann verður einnig næsta mánudag og svo mánudaginn þar á eftir en þá þurfa nemendur, allir sem einn að skila af sér verkefnum.
Læt þetta duga í bili – Takk fyrir vikuna og góða helgi.