Danmörk 2011

Nú er bara 1 dagur í brottför og allt að verða klárt. Við fljúgum til Kaupmannahafnar kl. 16.10 á laugardaginn og munum dvelja þar fram á laugardag 27. ágúst. Fylgist með ferðasögunni:). Kv. Anna dönskukennari

Mikið að gera:) !

Jæja, núna er geðveikt mikið að gera hjá 9.bekk!

Árshátíðin.
Yfirleitt hefur verið mjög mikil stress í kringum árhátíðina og þess vegna ætlum við 9.bekkur að byrja að skipuleggja þetta snemma og reyna losna við allt þetta svaka vesen sem hefur fylgt henni í svo mörg ár.  
Það er ekki langt síðan þemað fyrir árshátíðina var valið - ÁVAXTAÞEMA – og það henntaði mjög vel vegna þess að yngri deildin var búin að búa til eitthver ávaxtaleikrit úr ávaxtakörfunni! :)
Núna getur 9.bekkur byrjað að búa til skreytingar og leikþætti sem verður svo notað á árshátíðinni.

Annarskil.
Núna fyrir stuttu voru annarskil og reyndu nemendur 9.bekkjar að etja kappi að reyna klára allt sem átti að skila á réttum tíma, vegna þess að sumir voru komnir svolítið langt á eftir í sumu :P
Við losnuðum að mestu leiti við öll lokapróf nema eitt, vegna nýs prógramms hjá kennurum, eitthverskonar lotukerfi. Það hentar mjög vel vegna þess að við erum alltaf í prófum eftir hvern kafla. Og lokapróf væri bara eitthvað til að reyna kála okkur öllum! :p
Einnig fórum við í foreldraviðtöl sem gengu bara mjög vel.

Samfés.
Flestir unglingar í Flúðaskóla skelltu sér á samfés þessa helgi með félagsmiðstöðinni. Farið var frá Flúðum á föstudaginn eftir skóla og komum við heim á sunnudeginum. Farið var á skauta, í keilu, sund og margt fleira skemmtilegt. Samfés-ballið var á föstudeginum frá 19:00 til 23:00. Ballið var mjög skemmtilegt og talið er að um 4.000 unglingar hafi mætt. Það var mikið troðið en samt rosalega gaman :) Bára umsjónakennari var á gæslu á ballinu.
Daginn eftir var svo söngvakeppnin og mörg skemmtileg lög voru að keppa.
Það var mikið um dýrðir á Samfés ballinu í fyrra.
Bless kex!
Alexandra & Ragnhildur
9.bekkur!

Týnd myndavél.

Hæ og hó.

Það er nú deginum ljósara að ekkert hefur gerst á bloggsíðunni okkar í alltof langan tíma. Það er  skýring á þessu, hversu undarleg sem hún virðist vera.  Í janúar fengum við Hjört Atla í nokkra tíma til að kenna ræðumennsku. Í lokin urður nemendur að halda ræðu og voru dæmd eftir ákveðnu kerfi.  Þetta tókst frábærlega vel og fóru margir algjörlega á kostum í ræðunum sínum.  Auðvitað mætti ég með myndavél og ætlaði að setja inn myndir af þessari skemmtilegu uppákomu……en viti menn, ekkert hefur spurst til myndavélarinnar síðan. Ég er búin að gefast upp á að bíða eftir því að hún finnist, en ef hún kemur í leytirnar einhvern daginn, skelli ég auðvitað nokkrum myndum inn.

Í byrjun febrúar var unglingadeildinni boðið á árshátíðina í Reykholti og var þar mikið stuð.

Núna erum við að byrja að skipuleggja árshátíðina okkar og er ekki laust við að mikill spenningur sé að myndast í bekknum.

Góða helgi. Bára

Nýtt ár, alltaf gaman að því.

Já há, gleðilegt nýtt ár :-)

Eins og alltaf er nóg að gera hjá 9.bekk.  Þessa vikuna eru þau að þramma í hús og safna flöskum fyrir danmerkurferðina sína. Eftir því sem ég best veit hefur krökkunum gengið vel að safna í ferðasjóðinn sinn, þökk sé ölllum þeim sem hafa styrkt þau bæði með því að kaupa peysur, konfekt, lakkrís og ýmislegt annað af þeim og svo auðvitað að gefa þeim flöskur.

Við fáum gestakennara til okkar á föstudaginn kemur. Hann heitir Hjörtur Atli og ætlar að fara aðeins í ræðumennsku og framsögn og tjáningu með krökkunum. Eða eins og sumir segja ; ætlar að kenna krökkunum að „rífa kjaft á kurteisislegan hátt“   ;-)  Hjörtur kemur svo tvisvar sinnum í viðbót, þannig að krakkarnir fá fimm kennslustundir í þessu efni.

Við erum aðeins farin að velta fyrir okkur árshátíðinni, hvaða þema okkur langar að vera með og þess háttar. Þó að langt sé í hana, er það nú svo að tíminn líður alltaf svo hratt að apríl verður kominn áður en við vitum af.

Knús í hús Bára

Gleðileg jól

Það er búið að vera nóg að gera hjá orkuboltunum mínum í 9.bekk undan farnar vikur.

SandraDögg vann verðlaun í forvarnadeginum og fór á Bessastaði þar sem hún tók við verðlaunum við hátíðlega athöfn, til hamingju krúsan mín.

Núna bíðum við öll spennt eftir að komast í jólafrí, en fyrst skellum við okkur á jólaball í kvöld, þar sem fullt af krökkum úr öðrum skólum ætla að skemmta sér með okkur :-)

Vinaleikurinn hefur staðið þessa viku og held ég að allir séu mjög ánægðir með hann og hafi fengið margt fallegt og ekki síst ýmislegt gott að gæða sér á.

Á morgun verða svo litlu jólin með hefðbundnu snið og að sjálfsögðu veður pakka leikurinn okkar á sínum stað.

Ég og bekkurinn þökkum árið sem er að líða og óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

Jólaknús Bára

1.Desember 2010!

Jæja það er búið að gerast mikið síðan við blogguðum síðast og við ætlum að segja frá því helsta!!  Okkur var boðið að koma á Laugarvatn að skoða skólann ásámt fleiri skólum. Þar tókum við þátt í körfuboltakeppni bæði strákarnir  og stelpurnar okkar. Stelpurnar lentu í fyrsta sæti en strákarnir í öðru sæti :) svo um kvöldið var söngvakeppnin Blítt og létt!  Svo kom námsmat og núna er kominn ný önn :) !!

Fjáröflunin okkar gengur vel, það gekk rosa vel að selja lakkrís og safna dósum. Laugardaginn 27 & 28 nóvember vorum við að selja boli, svuntur og konfekt sem gekk mjög vel!  Allavega heyrðum við að margir höfðu keypt. (:

kær kveðja, Lilja Kristín og Hrafnhildur Jóhanna Björg!

Forvarnardagurinn 2010!

Í dag, miðvikudaginn 3. nóvember, er forvarnardagurinn 2010. Í tengslum við hann vorum við á mánudaginn að fræðast um forvarnir. Þá komu Krismundur Axel, systir hans Dúa og Rósa Sósa og töluðu við okkur um áfengi, dóp, kynlíf og fordóma. Það var mjög skemmtilegt og fræðandi ;D . Á morgun koma svo sveitastjórnarmenn í hemsókn til okkar og við megum spyrja þau spurninga um hvað sem er(notar þú smokk?). Á mánudaginn var svo líka skáld í skóla þar sem komu tveir rithöfundar, annar skrifar ljóð og hinn bækur og fræddu okkur um hvernig maður skrifar. Þessi vika er semsagt búin að vera mjög skrítin og skemmtileg ;P

Svo fengu þau auðvitað blóm og konfekt fyrir að koma :D

Kv. Sandra Dögg og Lilja Kristín

orkuboltarnir góðir að vanda ;-)

Jamm og já, þá er víst komið að mér að blogga.  Eins og þið hafið séð, skiptumst við í bekknum á að blogga  og augljóslega telst ég til 9.bekkjar. Það er nú búið að vera nóg að gera síðustu daga. Tónlist fyrir alla var á fimmtudaginn þar sem fiðlu- og gítartónlist var kynnt fyrir okkur, bara gaman.  Síðan fengu nemendur í 9. og 10.bekk heimsókn frá Alnæmissamtökunum, þar sem ýmislegt fróðlegt  var rætt. Ekki má gleyma að þessar elskur fengu öll sem eitt sprautu í upphaldlegg og var ansi misjafnt hvað þeim fannst um það.  Sumir báru sig mannalega og fundu ekki fyrir neinu á meðan aðrir urðu hálf slappir og helaumir í hendinni. Þarna var ég heppin að vera ellismellur bekkjarins, slapp algjörlega við þetta :-)

Á miðvikudaginn í næstu viku er forvarnardagurinn, þar sem við komum til með að vinna fjölbreytt verkefni. Sveitarstjórnarfólk kíkir til okkar og fá krakkarnir tækifæri til að láta spurningar rigna yfir þau.

Í tengslum við þennan dag fáum við konu sem er meðferðarfulltrúi fyrir áfengissjúklinga til að ræða við krakkana vítt og breytt um áfengis- og vímuefnaneyslu. Hún kemur með leynigest með sér sem ég veit að á eftir að gera stormandi lukku. Ég ætla að láta næsta bloggara eftir að segja frá því :-)

Þetta er orðið alltof langt……bless Bára

13.10 ;)

já.. skólinn rúllar áfram á þessum örfáu krónum ! peningar eru ekki allt mælti skáldið og eru sú orð jafn sönn í dag og þau voru þá ! Vikan hefur verið viðburðarrík að venju ! Á mánudaginn var hinn sí vinsæli dagur, foreldraviðtöl dagurinn sem kennararnir njóta sín sem mest þar sem þeir fá að hrauna yfir okkur og við getum ekkert sagt og þorum ekkert að segja með foreldrana við hlið okkar ! hehe;) Á þriðjudeginum var svo ákveðið að skella okkur í djúpulaugina !! já við vorum settir í lesskimunarpróf en þá var verið  að athuga hvort við  ættum við einhverja lestrarörðuleika en ég held að við séum það nú fæst. Í dag á miðvikudegi er svo BLEIKUR dagur og voru þá allir hvattir til þess að mæta í bleikum fötum og voru það nú bara all nokkrir sem gerðu það:)

Gott í bili !

Ari og  Björgvin Viðar ;)

5.10 ’10

HæHæ.. við í níundabekk erum búinn að vera rosadugleg að safna pening fyrir rauðakrossinn af því að við tókum þátt í  Göngum Til Góðs,  fyrir börn í afríku. Svo erum við bara búinn að vera að læra og eitthvað :) Á mánudaginn í næstu viku eru foreldraviðtöl og á þriðjudaginn er skymunarpróf eða eitthverskonar lesblindu próf :) … kveðja Sólveig og Hannes ;)