Flugid okkar er FI217. Vid eigum ad fljúga kl. 22.30 og lending áætlud um kl. 23.40. Vona ad thad standist allt saman. Takk enn og aftur fyrir allt. Vid øll.
-
Pages
-
Categories
-
Archives
Flugid okkar er FI217. Vid eigum ad fljúga kl. 22.30 og lending áætlud um kl. 23.40. Vona ad thad standist allt saman. Takk enn og aftur fyrir allt. Vid øll.
Síðasta kvöldið langt komið og ég og nemendur og foreldrar alsælir. Sumir þreyttari en aðrir en allir afskaplega kátir og glaðir. Það má eiginlega segja að kátínan og gleðin hafi fylgt nær öllum, allan tímann. Ákaflega líflegur og lífsglaður hópur, kurteis og skemmtilegur. Allt hefur gengið upp og þau hafa algjörlega verið frábær í allri [...]
Og þá er göngudeginum mikla lokið. Sá dagur er löngum ansi strangur en mjög viðburðarríkur. Þó nokkrar kynningar voru eftir í bæklingnum okkar og voru það verkefni dagsins. Við byrjuðum á því í blíðunni í dag að storma inn í Kaupmannahöfn og koma okkur á strunsinu margumtalaða að Amalienborg og fá kynningu á höllinni. Þar [...]
Veit bara varla hvar skal byrja frásögnina eftir daginn í dag. Held ég verði bara að byrja á því að segja ykkur frá kvöldinu. Kvöldinu þar sem við, örfáir Íslendingar, sátum innan um rúma 30.000 Dani og Norðmenn og upplifðum það á algjörlega magnaðan hátt að Íslendingurinn Sölvi Geir Ottesen skoraði frábært mark fyrir liðið FCK [...]
„Loksins, loksins komin heim…..“ Svona hugsuðu líklega margir síðustu metrana að skólanum rétt í þessu. Við erum að koma úr Tívolí. Þarf nokkuð að hafa fleiri orð um það??:) Eiginlega og einfaldlega bara frábær og ótrúlega viðburðarríkur dagur að baki. Byrjuðum á mjög skemmtilegri samvinnu við Danina þar sem spilaður var leikur sem gekk út á [...]
Þá er dagur 2 kominn að kveldi. Við höfum dvalið í góðu yfirlæti í Ballerup í dag og fengið sól og hita og rigningu og hita með jöfnu millibili í allan dag og fram á kvöld. Við mættum í skólann kl. 10.00 og hentum okkur út í „djúpu laugina“ með Dönunum. Fyrst lágu fyrir fjölbreytt stærðfræðiverkefni sem gengu aðallega út á [...]
Þá er komið að lokum þessa fyrsta dags. Klukkan hér reyndar aðeins 21.00 og þá 19.00 heima en „einhverra hluta vegna“ er komin þreyta í mannskapinn og farið að tala um að halla sér. Allt hefur gengið vel í dag. Allar tímaáætlanir hafa staðist og rútan beið okkar á Kastrup og keyrði sem leið lá að [...]
Þá er komið að brottför en við förum af stað frá Flúðum kl. 03.15 í nótt og eigum flug til Kaupmannahafnar kl. 07.10 í fyrramálið. Hlökkum til og vonum að allt gangi vel. Kveðja. Anna.