Vardandi flug og heimkomu

Flugid okkar er FI217. Vid eigum ad fljúga kl. 22.30 og lending áætlud um kl. 23.40. Vona ad thad standist allt saman.
Takk enn og aftur fyrir allt.

Vid øll.

Dagur 6.

Síðasta kvöldið langt komið og ég og nemendur og foreldrar alsælir. Sumir þreyttari en aðrir en allir afskaplega kátir og glaðir. Það má eiginlega segja að kátínan og gleðin hafi fylgt nær öllum, allan tímann. Ákaflega líflegur og lífsglaður hópur, kurteis og skemmtilegur. Allt hefur gengið upp og þau hafa algjörlega verið frábær í allri umgengni og framkomu.

Má kannski segja í kjölfarið á göngudeginum mikla í gær að dagurinn í dag hafi verið frídagurinn mikli. Byrjuðum á því að rúlla Dönunum upp í fótbolta með því að sigra þá 4-1. Mikið voru Danirnir undrandi á því hve Íslendingarnir voru góðir í fótbolta. Og enn meira undrandi á því að stelpa gæti verið svona góð í fótbolta og meira að segja skorað:). Eiginlega frekar skemmtilegt! Eftir leikinn voru Danirnir kvaddir með virktum og síðan var haldið af stað í Ballerup-center þar sem einhverjir voru búnir að sjá eitthvað sem þeir ætluðu að kaupa áður en þeir færu heim. Þegar því var lokið tóku þau lestina til Klampenborg og gerðu innrás á Bakken, skemmtigarðinn góða í Dyrehaven. Allir fengu sér armband sem veitti þeim aðgang að öllum tækjum og nú var sko hlaupið á milli tækja og allt prófað mörgum sinnum. Þegar heim var komið um kl. 22.30 var orkan samt ekki búin og þó nokkrir voru rétt í þessu (kl. 24.00) að skila sér inn úr íþróttahúsinu þar sem þeir nýttu sér frábæra aðstöðu í síðasta sinn. Við ætlum að sofa út á morgun og taka daginn rólega og því nær öruggt að ekki verði farið að sofa strax. Enda margt sem þarf að ræða og pæla og rifja upp.

Á morgun höldum við til Kaupmannahafnar þar sem við ætlum að fara í Tycho Brahe safnið og sjá þrívíddarmynd. Endum á því að næra okkur áður en haldið er til Ballerup þar sem við klárum að pakka og þrífa svefnaðstöðuna. Rútan keyrir okkur á Kastrup kl. 18.30 og vonandi að flugið verði á réttum tíma, kl. 21.00. Lending áætluð um kl. 23.00 á ísl. tíma.

Hlökkum öll til að koma heim, þreytt en afar glöð og þakklát. Þakklát fyrir það að hafa fengið tækifæri til að dvelja í góðu yfirlæti við nám og skemmtun sem mun aldrei gleymast. Erum afar þakklát öllum þeim sem hafa hjálpað og stutt við bakið á okkur til að þessi ferð gæti orðið að veruleika.

Með þessum orðum lýkur ferðasögunni okkar og við sjáumst seint annaðkvöld.

Með kærri kveðju,

Anna.

Dagur 5.

Og þá er göngudeginum mikla lokið. Sá dagur er löngum ansi strangur en mjög viðburðarríkur.

Þó nokkrar kynningar voru eftir í bæklingnum okkar og voru það verkefni dagsins. Við byrjuðum á því í blíðunni í dag að storma inn í Kaupmannahöfn og koma okkur á strunsinu margumtalaða að Amalienborg  og fá kynningu á höllinni. Þar horfðum við síðan á vaktaskipti lífvarðanna ásamt miklum mannfjölda. Margrét drottning var ekki heima en við fengum að vita að systir hennar, Benedikte, væri að passa „húsið“ fyrir hana. Þar sem óperan er beint á móti höllinni, var tilvalið að kynna hana einnig. Síðan var Langelinie gengin og stoppað við Gefion-springvandet sem því miður er reyndar í viðgerð svo ekkert er vatnið í þeim tilkomumikla gosbrunni. Synd fyrir þau en þar sem þau vita nú heilmikið um hann eftir kynninguna, nú þá liggur beinast við að kíkja þar við þegar þau fara næst til Køben:). Hafmeyjan er ekki heima en við kíktum samt við hjá henni og fengum að vita það helsta um hana og sjá hvar og hvernig hún býr. Stór skermur er á „lóðinni“ hennar sem sýnir beint frá heimsýningunni í Shanghai og í kynningunni fengum við að vita að 1. maí voru 70 milljónir búnir að kíkja á hana þar! Eftir að við vorum búin að koma okkur til baka á Kongens Nytorv og fá okkur í svanginn, var stefnan tekin á Vor Frelsers Kirke og Christiana sem einnig eru í bæklingnum okkar sem þau bjuggu til. Þangað vilja fæstir fara aftur en þar var mikill mannfjöldi í dag og lá óróleiki í loftinu að okkur fannst svo við stoppuðum þar mjög stutt.

Þegar heim var komið, biðu Danirnir okkar og var farið í það að klára að undirbúa sameiginlegan kvöldverð. Nokkur kynni eru farin að takast með okkar fólki og Dönunum og vonandi að okkur takist að halda vel í það þegar fram í sækir í vetur.

Þegar 4-5 dagar eru liðnir, er auðsjáanlegt að ýmislegt skemmtilegt er farið að gerast í dönskunni og fleiru hjá nemendum. Þeir eru farnir að þekkja sig og kannast við sig hér í Ballerup og inni í Kaupmannahöfn og vita algjörlega hvert við eigum að fara, hvaða lest við eigum að taka og allt slíkt. Nokkrir nemenda eru farnir að brúka dönsku þegar þeir koma því við í verslunum, á lestarstöðum og í sjoppum og svo jafnvel sín á milli þó það sé nú meira í gríni en hitt. Þau voru snögg að kaupa sér sjálf miða í Metro í dag og fannst það ótrúlega einfalt og síðan var náttúrulega ótrúlega spennandi að ferðast með neðanjarðarlestinni. Þau spyrja margs og eru afar áhugasöm en einnig er farið að gæta ákveðinnar þreytu og óþolinmæði vegna þess að þegar maður er í 30 manna hópi, gengur allt frekar hægt fyrir sig og oft sem þarf að bíða eftir einhverjum eða gera eitthvað sem hægir á því sem verið að gera eða fara. Þetta er eitt af því sem er svo ótrúlega lærdómsríkt í þessum ferðum þ.e. að þurfa sífellt að vera að taka tillit, þurfa að hlusta svo maður verði ekki skilinn einhversstaðar eftir, ferðast um í milljónaborg og fylgja óskráðum reglum þar eins og hvernig á að ganga upp og niður tröppur í mannþröng þegar „maður er 30 manns“, víkja til hliðar, bíða á rauðu ljósi, taka tillit til hjólreiðafólks o.s.frv. Það er óendanlega margt sem þarf að hafa í huga og reynir verulega á þolinmæðina hjá þeim. Emn þau standa sig öll með miklum sóma og eru mjög kát og glöð.

Á morgun er landsleikur kl. 10.00 og jafnframt kveðjustund á milli nemenda í bekkjunum tveimur. Eftir það verður slappað af fram að Bakkenferðinni sem er síðasta stoppið í bæklingnum. Þar á síðan að hlaupa um fram á kvöld og prófa spennandi tæki og tól.

Þreytt en sæl og glöð eru þau nú komin í bæli og sofa vonandi afar vel eftir mjög strangan göngudag og mikla upplifun.

Með göngu/strunskveðjum frá Køben,

Anna.

Dagur 4.

Veit bara varla hvar skal byrja frásögnina eftir daginn í dag. Held ég verði bara að byrja á því að segja ykkur frá kvöldinu. Kvöldinu þar sem við, örfáir Íslendingar, sátum innan um rúma 30.000 Dani og Norðmenn og upplifðum það á algjörlega magnaðan hátt að Íslendingurinn Sölvi Geir Ottesen skoraði frábært mark fyrir liðið FCK og það eina mark leiksins. Eiginlega frekar magnað! Ekki laust við að stoltir Íslendingar hafi gengið út úr Parken, sönglandi með Dönunum sem einhvern veginn voru allsstaðar:). Þvílíkur mannfjöldi og þvílík stemmning! Áhangendur nokkuð ánægðir með sína menn!:). Toppurinn á annars mjög svo góðum degi.

Við eyddum deginum í Kaupmannahöfn þar sem nemendur sýndu okkur Hovedbanegården, Rådhuspladsen, Strøget, Kongens Nytorv og Nyhavn. Nemendur fengu kort í hendur og áttu sjálf að koma sér frá Rådhuspladsen og niður á Kongens Nytorv. Það var engum vandkvæðum bundið. Enduðum síðan skoðunarferðir dagsins  á því að sigla um „kanelerne“ þar sem við sáum margar merkar byggingar, kafbát, fallbyssur, herskip og margt, margt fleira. Eftir vel heppnaðar skoðunarferðir fengu nemendur svo 2 klst. til að hlaupa um á Strikinu og kíkja kannski smá í búðir;).

Á undan leiknum borðuðum við sameiginlega máltið á Jensens´Bøfhus og drifum okkur síðan á leikinn magnaða. Engin smá upplifun þegar við gengum í upp í stúkuna okkar og rúmlega 30.000 manns sungu hástöfum, klöppuðu og stöppuðu. Held að ekkert okkar muni gleyma þeirri stundu. Og svei mér ef ég heyrði ekki nemendur hrópa á dönsku í hita leiksins. „Skyd!!!“ (reyndar borið fram eins og skid… en það gerði ekkert til…veit reyndar ekki alveg hvað danskir sessunautar okkar héldu;), nej!, hold kæft mand og fleira í þessum dúr.

Þau stóðu sig algjörlega frábærlega í dag og þið foreldrar og forráðamenn getið verið mjög stolt af þeim. ´

Hlökkum til morgundagsins sem byrjar með skoðunarferðum inn í Kaupmannahöfn og endar á sameiginlegri skemmtun og grilli með dönsku nemendunum hér í skólanum.

Veðrið er búið að vera fínt þó dálítið mikið hafi blásið.

Síminn minn m. danska númerinu er: 0045-27310135.

Eigið góðar stundir, við eigum virkilega góðar stundir hér:)

Með kveðju inn í nóttina.

Anna.

Dagur 3.

„Loksins, loksins komin heim…..“ Svona hugsuðu líklega margir síðustu metrana að skólanum rétt í þessu. Við erum að koma úr Tívolí. Þarf nokkuð að hafa fleiri orð um það??:)

Eiginlega og einfaldlega bara frábær og ótrúlega viðburðarríkur dagur að baki. Byrjuðum á mjög skemmtilegri samvinnu við Danina þar sem spilaður var leikur sem gekk út á framboð og eftirspurn. Get varla líst honum á einfaldari hátt. Bekkjunum skipt upp í blandaða hópa, hver hópur fékk umslag með mismunandi gögnum í og svo gekk leikurinn út á að selja og kaupa form sem þau urðu að teikna og klippa. Látið nemendurna um að segja ykkur betur frá leiknum þegar heim er komið en hann sló í gegn og var frábært samvinnuverkefni þar sem reyndi á enskukunnáttu (viðskiptamálið var enska), samvinnu, útsjónarsemi og kænsku, heiðarleika, þolinmæði og svo ekki síst, dönskukunnáttu:). Í hita leiksins sagði einn nemandinn við mig, frekar niðurdreginn: “ ég hélt myndi aldrei á ævinni óska þess svona heitt að ég kynni dönsku“…;)  en það ætti kannski að fylgja sögunni að nemandinn er mikill keppnismaður og hann sá fram á að sinn hópur væri ekki að vinna:). Þekkir einhver slíkan nemanda í bekknum???

Eftir skólavinnu var strunsað upp á lestarstöð og lest tekin inn til Kaupmannahafnar. Fórum á Nørreport, skoðuðum Rundetårn, Rosenborgarhöll þar sem við sáum hermenn æfa á svæðinu v. höllina og dáðumst að krúnudjásninu sem geymt er í Rosenborg og íburði þessarar skemmtilegu hallar. Stefnan síðan tekin á Tívolí og ætt þar um í orðsins fyllstu merkingu;) fram til kl. 22.30 með smávegis matarstoppi á Hard rock café. Eiginlega allir búnir að prófa öll tæki, líka pabbinn Axel og eiginlega allir búnir á því, líka pabbinn Axel:). Enda ekki að undra þar sem sum tækin virðast hreinlega til þess gerð að slá undan manni lappirnar og gera mann ringlaðan. Þó allir séu eiginlega búnir á því þá eru þau algjörlega himinsæl og í skýjunum og allt það.

Spennandi dagur framundan á morgun. Sofum aðeins lengur eða til kl. 08.30 og drífum okkur svo inn til Kaupmannahafnar og vinnum okkur í gegnum verkefnin í bæklingnum okkar. Endum í Idrætsparken á leik FCK-Rosenborg ásamt u.þ.b. 35.000 öðrum áhorfendum. Okkur finnst það eiginlega ekkert mjög leiðinleg tilhugsun:).

Þökkum ljúfar kveðjur, kem þeim áleiðis til nemenda.

Góðar kveðjur inn í nóttina.

Anna.

Dagur 2.

Þá er dagur 2 kominn að kveldi. Við höfum dvalið í góðu yfirlæti í Ballerup í dag og fengið sól og hita og rigningu og hita með jöfnu millibili í allan dag og fram á kvöld. 

Við mættum í skólann kl. 10.00 og hentum okkur út í „djúpu laugina“ með Dönunum. Fyrst lágu fyrir fjölbreytt stærðfræðiverkefni sem gengu aðallega út á samanburð á Danmörku og Íslandi og síðan unnu þau kynningu þar sem Danirnir urðu að gjöra svo vel að bera fram nöfnin okkar Íslendinga á réttan hátt og sömuleiðis íslensku nemendurnir dönsku nöfnin. Jafnframt þurftu þau að afla annarra upplýsinga um hvert annað eins og búsetu, aldur, áhugamál og gæludýr. Kom ýmislegt skondið út úr þessari kynningu og nokkuð víst að Andrééi (Andri), Fórrrmúndúrrr með dönsku erri (Þórmundur), Sígggúrbvrohhhk (Sigurbjörg) og fleiri með góð og gild íslensk nöfn, myndu ekki svara nafnakalli Dananna „med det samme“ en kannski í lok vikunnar þegar farið er að venjast:). Íslensku nemendurnir gátu vel við unað þar sem þeim tókst vel flestum að bera nöfnin dönsku vel fram. Eftir hádegi gengum við upp í Ballerup-centret og eyddum góðum tíma í að skoða þar og versla eftir að búið var að prófa að fara í hraðbanka og kaupa símakort. Við borðuðum saman hér í skólanum í kvöld og síðan er búið að nota afgangsorku í að hoppa um í íþróttahúsinu. Þau eru að tínast inn úr því skoppi og eru að fara að leggja sig þar sem morgundagurinn hefst með kennslustund kl. 08.00 – 12.00. Eftir hádegi er stefnan síðan tekin á Kaupmannahöfn sjálfa þar sem við munum fara í skoðunarferð út frá verkefnunum okkar og enda daginn í Tivoli.

Stór skref stigin og mörg þessa dagana og er ekki annað að sjá og finna en árgangur ´95 njóti þessara daga í hvívetna.

Þökkum góðar kveðjur og meira en mikið gaman að sjá að þið lesið um ferðina okkar og fylgist með því sem við erum að gera.

Kveðja frá okkur öllum.

Anna.

Dagur 1.

Þá er komið að lokum þessa fyrsta dags. Klukkan hér reyndar aðeins 21.00 og þá 19.00 heima en „einhverra hluta vegna“ er komin þreyta í mannskapinn og farið að tala um að halla sér.

Allt hefur gengið vel í dag. Allar tímaáætlanir hafa staðist og rútan beið okkar  á Kastrup og keyrði sem leið lá að Grantofteskolen. Þar beið Gert eftir okkur með matvörur og lykla að öllu skólahúsnæðinu. Það höfum við nýtt okkur til hins ýtrasta því úti hefur rignt ansi hressilega. Eitthvað hefur eirðarleysi gert vart við sig þar sem þessi fjörugu ungmenni eru nú ekki vön að húka mikið eða hanga og því var það ansi kærkomið að komast í íþróttahúsið og sprikla þar í köðlum og sparka í bolta eða hitta í körfu. Mikill raki er í lofti en heitt og gott veður með um 21 stigs hita.

Á morgun hittum við danska félaga og vinnum með þeim fram að hádegi en eftir það er stefnan sett á Ballerup-centret og centrum. Þá á að kaupa sér kort í síma og taka út peninga í banka. Meira um morgundaginn annaðkvöld.

Sendum góðar kveðjur heim.

Anna og allir hinir.

Brottför

Þá er komið að brottför en við förum af stað frá Flúðum kl. 03.15 í nótt og eigum flug til Kaupmannahafnar kl. 07.10 í fyrramálið. Hlökkum til og vonum að allt gangi vel.

Kveðja.

Anna.

10. bekkur á leið til Danmerkur

10. bekkur Flúðaskóla er á leið í viku ferð til Danmerkur og leggur í hann kl. 3:15 frá Flúðaskóla og flogið er kl: 7:10 sunnudaginn 22. ágúst.  Það er vonandi að ferðin verði skemmtileg og óska ég ykkur góðrar ferðar.

kveðja Ella Jóna